Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 3. mars 2025 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum sem upphaflega var tilkynnt um 14. júní 2024. Í viku 13 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 1.040.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 130.625.000 eins og nánar er greint í þessari tilkynningu.
Í viku 13 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 1.040.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 130.625.000 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
24.3.2025 | 11:27 | 420.000 | 123,500 | 51.870.000 | 125.829.230 |
25.3.2025 | 15:56 | 200.000 | 125,500 | 25.100.000 | 126.029.230 |
26.3.2025 | 10:42 | 420.000 | 127,750 | 53.655.000 | 126.449.230 |
Samtals vika 12 | 1.040.000 | 130.625.000 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 13 átti bankinn 125,409,230 hluti, sem nemur 6,27% af útgefnum hlutum.
Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll þann 3. mars 2025, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 10 milljón hluti sem jafngildir 0,50% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 4. mars síðastliðinn og skyldu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 26. mars 2025.
Síðasti viðskiptadagur þessarar umferðar endurkaupa samkvæmt framansögðu er því liðinn. Bankinn keypti 6.920.000 hluti í umferðinni, sem nemur 0,35 % af útgefnum hlutum og nam heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 851.780.000 í umferðinni. Áform um bestun á eiginfjársamsetningu bankans eru enn í forgangi, að teknu tilliti til markaðsaðstæðna.
Frá upphafi endurkaupa í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 126.449.230 eigin hluti eða sem nemur 6,32% af útgefnum hlutum í bankanum.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur 1275/2024 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.