Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 42
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 1. október 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum, sem upphaflega var tilkynnt um 21. september 2026. Í viku 42 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 3.361.730 eigin hluti að kaupverði alls 462.832.318 kr. eins og nánar er tilgreint í þessari tilkynningu.
Í viku 42 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 3.361.730 eigin hluti að kaupverði alls 462.832.318 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dags | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 12.10.2026 | 10:54:54 | 200.000 | 139,40 | 27.880.000 | 102.766.256 |
| 12.10.2026 | 13:36:43 | 300.000 | 139,30 | 41.790.000 | 103.066.256 |
| 12.10.2026 | 15:24:46 | 100.000 | 138,00 | 13.800.000 | 103.166.256 |
| 12.10.2026 | 15:31:46 | 100.000 | 138,60 | 13.860.000 | 103.266.256 |
| 13.10.2026 | 10:16:55 | 200.000 | 138,60 | 27.720.000 | 103.466.256 |
| 13.10.2026 | 11:25:49 | 200.000 | 138,00 | 27.600.000 | 103.666.256 |
| 13.10.2026 | 14:32:04 | 200.000 | 137,80 | 27.560.000 | 103.866.256 |
| 13.10.2026 | 15:08:37 | 100.000 | 137,80 | 13.780.000 | 103.966.256 |
| 14.10.2026 | 13:25:56 | 300.000 | 137,20 | 41.160.000 | 104.266.256 |
| 14.10.2026 | 14:13:23 | 150.000 | 137,00 | 20.550.000 | 104.416.256 |
| 14.10.2026 | 14:53:41 | 150.000 | 137,20 | 20.580.000 | 104.566.256 |
| 14.10.2026 | 15:14:25 | 100.000 | 137,00 | 13.700.000 | 104.666.256 |
| 15.10.2026 | 15:00:13 | 400.000 | 136,80 | 54.720.000 | 105.066.256 |
| 15.10.2026 | 15:31:20 | 300.000 | 137,00 | 41.100.000 | 105.366.256 |
| 16.10.2026 | 11:49:53 | 61.730 | 136,60 | 8.432.318 | 105.427.986 |
| 16.10.2026 | 12:13:03 | 100.000 | 137,00 | 13.700.000 | 105.527.986 |
| 16.10.2026 | 14:36:35 | 300.000 | 137,00 | 41.100.000 | 105.827.986 |
| 16.10.2026 | 15:37:03 | 100.000 | 138,00 | 13.800.000 | 105.927.986 |
| Samtals vika 42 | 3.361.730 | 462.832.318 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 42, átti bankinn 102.566.256 hluti, sem samsvarar 5,85% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 7.311.730 hluti, sem nemur 0,42% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 1.016.052.318 í umferðinni.
Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 25 milljón hluti sem jafngildir um 1,43% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 3.000.000.000. Endurkaupin hófust 2. október síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. desember 2026.
Bankinn á samtals 105.927.986 eigin hluti eða sem nemur 6,04% af útgefnum hlutum í bankanum.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 1290/2025 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum var fyrirliggjandi.