Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 22. nóvember 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum sem upphaflega var tilkynnt um 14. júní 2024. Í viku 48 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 2.475.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 308.090.000 eins og nánar er greint frá hér á eftir.
Í viku 48 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 2.475.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 308.090.000 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
25.11.24 | 13:12:57 | 300.000 | 125,00 | 37.500.000 | 95.635.343 |
25.11.24 | 15:16:46 | 220.000 | 125,00 | 27.500.000 | 95.855.343 |
26.11.24 | 10:27:39 | 200.000 | 125,00 | 25.000.000 | 96.055.343 |
26.11.24 | 14:32:00 | 200.000 | 125,00 | 25.000.000 | 96.255.343 |
26.11.24 | 15:15:49 | 115.000 | 124,00 | 14.260.000 | 96.370.343 |
27.11.24 | 10:39:30 | 200.000 | 124,25 | 24.850.000 | 96.570.343 |
27.11.24 | 13:45:30 | 200.000 | 123,50 | 24.700.000 | 96.770.343 |
28.11.24 | 10:08:57 | 200.000 | 124,00 | 24.800.000 | 96.970.343 |
28.11.24 | 13:27:19 | 200.000 | 124,00 | 24.800.000 | 97.170.343 |
28.11.24 | 15:19:04 | 120.000 | 124,50 | 14.940.000 | 97.290.343 |
29.11.24 | 15:02:58 | 520.000 | 124,50 | 64.740.000 | 97.810.343 |
Samtals vikan | 2.475.000 | 308.090.000 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 48 átti bankinn 95.335.343 hluti, sem nemur 4,77% af útgefnum hlutum. Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn keypt 2.475.000 hluti, sem nemur 0,12% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 308.090.000 í umferðinni.
Í þessari umferð endurkaupa er áætlað að kaupa allt að 10 milljón hluti sem jafngildir 0,50% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupunum var haldið áfram 25. nóvember síðastliðinn og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. janúar 2024.
Frá upphafi endurkaupa í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 97.810.343 eigin hluti eða sem nemur 4,89% af útgefnum hlutum í bankanum.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.