Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 14. júní 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum.
Í viku 35 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 277.887 eigin hluti að kaupverði alls kr. 29.042.079 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagur | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
26.08.2024 | 14:39:30 | 100.000 | 104,25 | 10.425.000 | 87.051.476 |
28.08.2024 | 11:04:02 | 100.000 | 104,00 | 10.400.000 | 87.151.476 |
29.08.2024 | 15:15:27 | 77.887 | 105,50 | 8.217.079 | 87.229.363 |
Samtals vika 35 | 277.887 | 29.042.079 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 35 átti bankinn 86.951.476 hluti, sem nemur 4,35% af útgefnum hlutum.
Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll þann 14. júní 2024, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 11 milljón hluti sem jafngildir 0,55% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000.
Í þessari umferð endurkaupa keypti bankinn 9.939.226 hluti, sem nemur 0,50% af útgefnum hlutum og nam heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 999.999.904 í umferðinni. Framangreindu hámarki heildarfjárhæðar endurkaupa er því náð í þessari umferð.
Frá upphafi endurkaupa í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 87.229.363 eigin hluti eða sem nemur 4,36% af útgefnum hlutum í bankanum. Líkt og tilkynnt var um samhliða ársuppgjöri bankans þann 8. febrúar 2024 hefur bankinn í hyggju að ráðast í útgreiðslu á umfram eigin fé sem nemur 10 milljörðum króna. Við lok þessarar umferðar endurkaupa hefur bankinn keypt til baka hlutir fyrir rúmlega 4 milljarða króna af þeirri fjárhæð. Líkt og fram hefur komið hyggst bankinn besta samsetningu efnahagsreikning síns fyrir árslok 2025, að teknu tilliti til markaðsaðstæðna.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupaáætlunina sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.