Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 22. nóvember 2024 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum sem upphaflega var tilkynnt um 14. júní 2024.
Það sem af er viku 51 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 602.856 eigin hluti að kaupverði alls kr. 73.978.966 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
16.12.2024 | 11:15:23 | 200.000 | 122,50 | 24.500.000 | 103.040.343 |
1612.2024 | 11:17:04 | 135.000 | 122,50 | 16.537.500 | 103.175.343 |
16.12.2024 | 13:14:49 | 100.000 | 122,75 | 12.275.000 | 103.275.343 |
16.12.2024 | 14:12:24 | 85.000 | 122,75 | 10.433.750 | 103.360.343 |
17.12.2024 | 10:03:59 | 82.856 | 123,50 | 10.232.716 | 103.443.199 |
Samtals | 602.856 | 73.978.966 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 51 átti bankinn 102.840.343 hluti, sem nemur 5,14% af útgefnum hlutum.
Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll þann 22. nóvember 2024, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 10 milljón hluti sem jafngildir 0,50% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000.
Í þessari umferð endurkaupa keypti bankinn 8.107.856 hluti, sem nemur 0,41% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 999.999.892 í umferðinni. Framangreindu hámarki heildarfjárhæðar endurkaupa er því náð í þessari umferð.
Frá upphafi endurkaupa í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 103.443.199 eigin hluti eða sem nemur 5,17% af útgefnum hlutum í bankanum. Líkt og tilkynnt var um samhliða ársuppgjöri bankans þann 8. febrúar 2024 hefur bankinn í hyggju að ráðast í útgreiðslu á umfram eigin fé sem nemur 10 milljörðum króna. Við lok þessarar umferðar endurkaupa hefur bankinn keypt til baka hluti fyrir um 6,2 milljarða króna af þeirri fjárhæð. Líkt og fram hefur komið hyggst bankinn besta samsetningu efnahagsreikning síns fyrir árslok 2025, að teknu tilliti til markaðsaðstæðna.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.