Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 26. október 2023 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar sem upphaflega var tilkynnt um þann 17. febrúar 2023.
Í viku 50 hefur Íslandsbanki hf. (bankinn) keypt 436.244 eigin hluti að kaupverði alls kr. 46.678.108 eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) | Hlutir í eigu Íslandsbanka eftir viðskipti |
50 | 11.12.23 | 11:12:02 | 100.000 | 107,50 | 10.750.000 | 16.644.587 |
50 | 11.12.23 | 14:28:21 | 100.000 | 106,50 | 10.650.000 | 16.744.587 |
50 | 12.12.23 | 15:14:03 | 236.244 | 107,00 | 25.278.108 | 16.980.831 |
436.244 | 46.678.108 |
Fyrir framangreind viðskipti í viku 50 átti bankinn 16.544.587 eigin hluti, sem nemur 0,83% af útgefnum hlutum.
Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll þann 26. október 2023, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa, allt að 9,5 milljónir hluti sem jafngildir 0,475% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000.
Í þessari umferð endurkaupa hefur bankinn nú keypt samtals 9.500.000 eigin hluti sem jafngildir 0,475% af útgefnu hlutafé bankans fyrir samtals kr. 999.829.918 og er því framangreindu marki um hámarks fjölda hluta náð.
Frá upphafi endurkaupaáætlunar í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 16.980.831 eigin hlut eða sem nemur 0,85% af útgefnum hlutum í bankanum.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 296/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.