Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („skilmálaskjalið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Íslandsbanka að samrunaviðræðum félaganna hafi verið slitið.
Allt frá undirritun skilmálaskjalsins hafa aðilar unnið að fyrirhuguðum samruna félaganna, meðal annars með framkvæmd áreiðanleikakönnunar, samlegðargreiningu, undirbúnings tilkynninga til Samkeppniseftirlitsins og Fjármálaeftirlitsins og gerð samrunasamnings.
Með undirritun skilmálaskjalsins voru tilteknir helstu skilmálar fyrirhugaðs samruna, sem enn fremur báru með sér að skilmálar endanlegs samrunasamnings tækju mið af frekari viðræðum, niðurstöðum áreiðanleikakönnunar og annarri þeirri vinnu sem unnin hefur verið frá undirritun samkomulagsins. Slíkur samrunasamningur yrði háður samþykki stjórnar beggja félaga og á endanum hluthafa félaganna.
Að mati stjórnar Íslandsbanka höfðu niðurstöður og greiningar úr ferlinu, þróun á markaðsvirði félaganna tveggja og væntar auknar eiginfjárkröfur Seðlabanka Íslands vegna eignarhalds banka á tryggingafélagi leitt til þess að gera yrði breytingar á því gagngjaldi sem tilgreint var í skilmálaskjalinu til að gætt yrði að hagsmunum hluthafa Íslandsbanka. Ekki náðist samkomulag um slíkar breytingar og hafa aðilar því sammælst um að skilmálaskjalið sé fallið niður og samrunaviðræðum sé því slitið.
Íslandsbanki og VÍS tryggingar hf., dótturfélag Skaga, hafa átt í farsælu samstarfi síðastliðið ár. Með samstarfinu njóta viðskiptavinir sem eru í viðskiptum við bæði félög, ávinnings í vildarkerfum félaganna. Að auki hafa viðskiptavinir nú betri yfirsýn yfir fjármálavörur og tryggingar í appi bankans. Aðilar eru sammála um að halda þessu góða samstarfi áfram, viðskiptavinum þeirra beggja til heilla.
Íslandsbanki telur margvísleg tækfæri vera til staðar í rekstri og umhverfi bankans og tilkynnti nýlega um uppfærð fjárhagsleg markmið, sem tóku þau ekki tillit til áhrifa af mögulegum samruna og standa því óbreytt. Þar er gert ráð fyrir að arðsemi eigin fjár verði umfram 13% til meðallangs tíma og mun bankinn vinna áfram að bestun samsetningar eigin fjár á árinu 2026.
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi samrunaviðræðurnar sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055