2026-03-23 11:37:00
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings (S&P) hefur í dag breytt horfum á lánshæfismati útgáfuramma Íslandsbanka fyrir sértryggð skuldabréf úr stöðugum í jákvæðar. Á sama tíma var A+ lánshæfismat útgáfuramma Íslandsbanka fyrir sértryggð skuldabréf staðfest.
Breytingin kemur í kjölfar uppfærslu S&P á horfum á lánshæfismati íslenska ríkisins úr stöðugum í jákvæðar og staðfestingu á A+ lánshæfismati íslenska ríkisins, sem tilkynnt var um 6. mars 2026.