Tisdag 26 Maj | 02:22:43 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2024-11-12 15:45:00

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings (S&P) hefur í dag breytt horfum á lánshæfismati Íslandsbanka í jákvæðar úr stöðugum og jafnframt staðfest BBB+/A-2 langtíma- og skammtíma einkunnir bankans og A-/A-2 RCR einkunnir.

Að mati S&P hafa nýlega samþykktar skilaáætlanir kerfislega mikilvægra banka á Íslandi varpað frekara ljósi á umfang undirskipaðra (e. subordinated) skuldbindinga sem bönkunum verður gert hafa útistandandi. Miðað við kröfu um undirskipan sem svarar til 23,4% af áhættugrunni (að meðtalinni kröfu um eiginfjárauka), gerir S&P ráð fyrir því að Íslandsbanki muni gefa út umtalsvert magn af SNP-skuldabréfum (e. senior non-preferred) á aðlögunartímabilinu fram til október 2027.

S&P nefnir að þau gætu hækkað lánshæfismat Íslandsbanka ef bankinn eykur við undirskipaðar skuldbindingar sínar umfram aðlagað viðmið S&P um 4% af áhættugrunni á næstu 24 mánuðum. Slíkt myndi draga úr áhættu sem eigendur almennra skuldabréfa (e.senior preferred) standa frammi fyrir. S&P gæti endurskoðað horfurnar í stöðugar ef Íslandsbanki nær ekki viðmiði S&P um lágmarks tapsþol (e. ALAC threshold). Lækkun á lánshæfismati gæti átt sér stað ef RAC-hlutfall Íslandsbanka fer niður fyrir 15%, sem er það viðmið sem S&P álítur mjög sterkt, eða ef S&P greinir verulegar breytingar á efnahagslegum vísum á Íslandi, sem bankinn væri ekki ónæmur fyrir.

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi breytingar á horfum á lánshæfismati sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.