Tisdag 28 April | 14:31:32 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-04-28 12:18:00

Stjórn Íslandsbanka hefur samþykkt nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag. Markmið breytinganna er að einfalda stjórnskipulag og stytta boðleiðir og þannig efla þjónustu bankans við viðskiptavini enn frekar. Skipulagsbreytingunum er ætlað að styrkja bankann í áframhaldandi sókn, þar sem stafræn þróun, aukin nýting gervigreindar og breyttar kröfur viðskiptavina kalla á nýja nálgun í rekstri og þjónustu.

Með breytingunum er stjórnendum fækkað um 15% í heild sinni á árinu og forstöðumönnum um 20%. Þá fækkar aðalnefndum bankans úr ellefu í fjórar. Stofnað hefur verið nýtt stoðsvið, Stefnumótun og menning, sem mun stuðla að auknu samstarfi á milli annarra stoðsviða og styrkja áfram og þróa fyrirtækjamenningu bankans. Undir sviðið fellur lögfræðiþjónusta, mannauðsmál, markaðs- og samskiptamál, rekstrardeild auk stefnumótunar og sjálfbærni. Þá hafa verið gerðar breytingar á nöfnum viðskiptaeininga bankans á íslensku og bera þær nú heitin Einstaklingssvið, Fyrirtækjasvið og Fjárfestingarbankasvið. Með nafnabreytingunum er verið að skerpa á áherslum sviðanna.

Starfsfólki fækkar um rúmlega 20 við breytingar dagsins og gætir fækkunar helst í stoðeiningum bankans. Í heild mun stöðugildum fækka um samtals 50 á árinu. Þar er tekið tillit til fækkunar vegna snemmloka sökum aldurs sem greint var frá í ársuppgjöri 2025. Íslandsbanki leggur áherslu á að staðið sé af ábyrgð og virðingu að breytingum sem þessum og að hlúið sé að því starfsfólki sem þær ná til.

Kostnaður vegna starfsloka sem tilkynnt voru í dag kemur til gjalda á öðrum ársfjórðungi og nemur hann tæpum 260 milljónum króna. Kostnaður vegna afnáms snemmalokakerfis var gjaldfærður á árinu 2025. Gert er ráð fyrir að árlegur launakostnaður hjá Íslandsbanka dragist saman um u.þ.b. einn milljarð króna í kjölfar breytinganna. Áhrif þess munu fyrst koma fram í afkomu þriðja ársfjórðungs 2026 og munu koma fram að fullu á árinu 2027. 

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka:
„Breytingarnar eru liður í því að auka skilvirkni, stytta boðleiðir og einfalda ákvarðanatöku. Þannig eflum við þjónustu við viðskiptavini og nýtum þau tækifæri sem felast í gjörbreyttu tækniumhverfi. Við höfum unnið markvisst að því að greina áhrif nýjustu tæknibreytinga á starfsemi bankans. Við ætlum ekki aðeins að fylgja þeirri þróun, heldur vera leiðandi í henni og nýta hana til að styrkja Íslandsbanka sem eitt af leiðandi þjónustufyrirtækjum landsins.
Í þessum skipulagsbreytingum erum við að kveðja öflugt starfsfólk sem hefur lagt mikið af mörkum til bankans og við þökkum þeim kærlega fyrir mikilvægt framlag.
Með þessum breytingum heldur Íslandsbanki áfram að þróa rekstur sinn, styrkja samkeppnishæfni og tryggja að skipulag og kostnaðargrunnur styðji við langtíma árangur og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini.“ 

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi skipulagsbreytingarnar sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.