16:00:45 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Prenumeration

Kalender

2023-10-26 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 Årsstämma 2022
2022-02-10 Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.
2023-07-18 16:02:00

Stjórn Íslandsbanka hf. boðaði til hluthafafundar bankans með tilkynningu 2. júlí 2023. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 28. júlí 2023, kl. 11:00, í fundarsalnum Gullteig á Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 28, 105 Reykjavík. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Atkvæðagreiðsla á fundinum fer eingöngu fram með rafrænum hætti.

Í samræmi við samþykktir bankans hefur bankinn starfandi tilnefningarnefnd sem hefur það hlutverk að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu á aðalfundi bankans, eða eftir atvikum á hluthafafundi þar sem stjórnarkjör er á dagskrá.

Nánari upplýsingar um tilnefningarnefnd og starfsreglur nefndarinnar má finna á vef bankans.

Með tilkynningu í kerfi Kauphallarinnar og auglýsingu á vefsíðu bankans þann 6. júlí 2023 óskaði tilnefningarnefnd Íslandsbanka eftir framboðum til stjórnar til nefndarinnar fyrir 10. júlí 2023.

Bankasýsla ríkisins starfrækir sérstaka þriggja manna valnefnd sem tilnefnir aðila fyrir hönd ríkisins sem rétt hafa til setu fyrir hönd ríkisins í bankaráðum eða stjórnum fyrirtækja á forræði stofnunarinnar. Stjórn Bankasýslu ríkisins skal tilnefna til kjörs stjórnarinnar það hlutfall stjórnarmanna sem samsvarar eignarhluta ríkisins þegar kjör stjórnar fer fram.

Stjórn Bankasýslu ríkisins hefur tilnefnt þá þrjá einstaklinga í stjórn bankans og einn varamann, sem tilgreindir eru hér að neðan.

  • Anna Þórðardóttir, stjórnarmaður
  • Agnar Tómas Möller, stjórnarmaður
  • Haukur Örn Birgisson, stjórnarmaður
  • Herdís Gunnarsdóttir, varastjórn

Stjórn Bankasýslu ríkisins tilnefnir ekki fleiri einstaklinga til kjörs en vann með tilnefningarnefnd bankans að tilnefningu á formanni stjórnar. Var það því í verkahring tilnefningarnefndar að tilnefna fjóra stjórnarmenn og einn til vara.

Tilnefningarnefnd Íslandsbanka leggur til að auk þeirra sem stjórn Bankasýslu ríkisins hefur tilnefnt, verði eftirtaldir einstaklingar kjörnir í stjórn Íslandsbanka hf. á hluthafafundi bankans 28. júlí nk.

  • Linda Jónsdóttir, stjórnarmaður
  • Frosti Ólafsson, stjórnarmaður
  • Stefán Pétursson, stjórnarmaður
  • Valgerður Skúladóttir, stjórnarmaður
  • Páll Grétar Steingrímsson, varastjórn

Tilnefningarnefnd, í samráði við stjórn Bankasýslu ríkisins, leggur jafnframt til að Linda Jónsdóttir verði kjörin formaður stjórnar.

Nánar er fjallað um framangreindar tillögur í skýrslu tilnefningarnefndar sem er meðfylgjandi.

Störf tilnefningarnefndar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir hluthafafund bankans, þ.e. klukkan 16:00 þann 23. júlí 2023. Frambjóðendur sem vilja skila inn framboði til stjórnar eru beðnir um að fylla út sérstakt eyðublað sem finna má á vef bankans.

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is