Onsdag 2 April | 08:20:15 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.
2025-03-07 19:35:00

Stjórn Íslandsbanka hf. boðaði til aðalfundar bankans með tilkynningu 7. mars 2025. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 31. mars 2025, kl. 16:00, í fundarsalnum Háteig á Hótel Reykjavík Grand, Sigtúni 28, 105 Reykjavík. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Atkvæðagreiðsla á fundinum fer eingöngu fram með rafrænum hætti.

Í samræmi við samþykktir bankans hefur bankinn starfandi tilnefningarnefnd sem hefur það hlutverk að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu á aðalfundi bankans, eða eftir atvikum á hluthafafundi þar sem stjórnarkjör er á dagskrá.

Nánari upplýsingar um tilnefningarnefnd og starfsreglur nefndarinnar má finna á vef bankans.

Með tilkynningu í kerfi Kauphallarinnar og auglýsingu á vefsíðu bankans þann 20. janúar 2025 óskaði tilnefningarnefnd Íslandsbanka eftir framboðum til stjórnar, og sjónarmiðum hluthafa varðandi störf nefndarinnar í aðdraganda aðalfundar fyrir 17. febrúar 2025.

Tilnefningarnefnd Íslandsbanka leggur til að eftirtaldir einstaklingar verði kjörnir í stjórn Íslandsbanka hf. á aðalfundi bankans 31. mars nk.

  • Agnar Tómas Möller, stjórnarmaður
  • Haukur Örn Birgisson, stjórnarmaður
  • Helga Hlín Hákonardóttir, stjórnarmaður
  • Linda Jónsdóttir, stjórnarmaður
  • Stefán Pétursson, stjórnarmaður
  • Stefán Sigurðsson, stjórnarmaður
  • Valgerður Hrund Skúladóttir, stjórnarmaður
  • Herdís Gunnarsdóttir, varastjórn
  • Páll Grétar Steingrímsson, varastjórn

Tilnefningarnefnd leggur jafnframt til að Linda Jónsdóttir verði endurkjörin sem formaður stjórnar.

Nánar er fjallað um framangreindar tillögur í skýrslu tilnefningarnefndar sem er meðfylgjandi.

Störf tilnefningarnefndar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir aðalfund, þ.e. klukkan 16:00 þann 26. mars 2025. Frambjóðendur sem vilja skila inn framboði til stjórnar eru beðnir um að fylla út sérstakt eyðublað sem finna má á vef bankans.

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl, ir@islandsbanki.is.