Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Á aðalfundi Íslandsbanka hf. (Íslandsbanki eða bankinn) sem haldinn var þann 31. mars 2025, var samþykkt að veita stjórn, fyrir hönd bankans, heimild til að kaupa á næstu 18 mánuðum, frá samþykkt, hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins.
Bankinn hefur á grundvelli framangreindrar heimildar aðalfundar bankans tekið ákvörðun um að hefja endurkaup á eigin hlutabréfum með framkvæmd endurkaupaáætlunar í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans. Með tilkynningu dags. 5. febrúar 2025 tilkynnti bankinn að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefði veitt bankanum heimild fyrir endurkaupum á eigin bréfum fyrir allt að 15 milljarða króna að markaðsvirði. Er sú fjárhæð til viðbótar við þær 949.300.086 krónur sem eftir standa af 10 milljarða króna endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um framkvæmd á þann 14. júní 2024.
Samþykkt og útgefið hlutafé bankans nemur 1.880.470.770 almennra hluta, þar sem hver hlutur er jafnvirði fimm króna. Við dagsetningu tilkynningar þessarar á bankinn 6.920.000 eigin hluti.
Að þessu sinni er áætlað að kaupa, allt að 26.000.000 hluti sem jafngildir 1,38% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 3.000.000.000. Endurkaupin hefjast 8. júlí 2025 næstkomandi og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. september 2025.
Verð fyrir hvern keyptan hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Kaup hvers dags munu að hámarki nema 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf í bankanum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í júnímánuði 2025.
Endurkaupin verða framkvæmd af Fossum fjárfestingarbanka hf. sem tekur ákvarðanir um kaup á hlutafé fyrir hönd bankans og tímasetningu viðskipta óháð Íslandsbanka.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur nr. 1275/2024 um sama efni. Samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.
Viðskipti með hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í síðasta lagi í lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupaáætlunina sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055