Söndag 11 Maj | 11:45:38 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.
2023-10-26 23:08:00

Vísað er til fyrri tilkynninga Íslandsbanka hf. (hér eftir bankinn) um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 5 milljarðar króna, sem var tilkynnt um 17. febrúar 2023 og hófst 20. febrúar 2023. Bankinn hyggst nú halda áfram framkvæmd framangreindrar endurkaupaáætlunar í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans.

Vísað er til fyrri tilkynninga Íslandsbanka hf. (hér eftir bankinn) um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 5 milljarðar króna, sem var tilkynnt um 17. febrúar 2023 og hófst 20. febrúar 2023. Bankinn hyggst nú halda áfram framkvæmd framangreindrar endurkaupaáætlunar í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans.

Samþykkt og útgefið hlutafé bankans nemur 2.000 milljónum almennra hluta, þar sem hver hlutur er jafnvirði fimm króna. Við dagsetningu tilkynningar þessar á bankinn 7.480.831 eigin hlut og hefur bankinn keypt eigin hluti samkvæmt áðurnefndri endurkaupaáætlun að fjárhæð kr. 933.081.185.

Að þessu sinni er áætlað að kaupa, allt að 9,5 milljónir hluti sem jafngildir 0,475% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildar fjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000. Endurkaupin hefjast 27. október næstkomandi og munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 27. febrúar 2024.

Verð fyrir hvern keyptan hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Kaup hvers dags munu að hámarki nema 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf í bankanum á skipulegum markaði Nasdaq Iceland í septembermánuði 2023.

Endurkaupin verða framkvæmd af Arion banka hf. sem tekur ákvarðanir um kaup á hlutafé fyrir hönd bankans og tímasetningu viðskipta óháð Íslandsbanka.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 296/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglugerðar nr. 320/2022 um sama efni. Samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.

Viðskipti með hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í síðasta lagi í lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.