Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Aðalfundur Íslandsbanka verður haldinn 31. mars 2025.
Tilnefningarnefnd Íslandsbanka gegnir ráðgefandi hlutverki þegar kemur að kjöri til stjórnar bankans. Á þeim hluthafafundum þar sem kjör stjórnarmanna er á dagskrá leggur nefndin fram rökstuddar tillögur varðandi þá frambjóðendur sem hún telur best til þess fallna að taka sæti í stjórn bankans. Nánari upplýsingar um hlutverk tilnefningarnefndar og starfsreglur nefndarinnar má finna á vef Íslandsbanka.
Tilnefningarnefnd Íslandsbanka óskar eftir framboðum til stjórnar bankans sem kjörin verður á aðalfundi bankans þann 31. mars 2025. Framboðum skal skilað til tilnefningarnefndar á sérstöku eyðublaði gegnum vef bankans fyrir kl. 16:00 þann 17. febrúar 2025. Tilnefningarnefnd mun ekki leggja mat á framboð sem berast eftir þann tíma. Fyrirhugað er að nefndin birti tillögu sína samhliða boðun aðalfundar eða í síðasta lagi þremur vikum fyrir aðalfund.
Athugið að störf tilnefningarnefndar og skilafrestur framboða til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir aðalfund bankans, þ.e. klukkan 16:00 þann 26. mars 2025.
Vilji hluthafar koma sjónarmiðum á framfæri við nefndina er varðar störf hennar í aðdraganda aðalfundar, er þeim bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd í gegnum netfangið tilnefningarnefnd@islandsbanki.is eigi síðar en 17. febrúar 2025.
Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestingatengsl – Bjarney Anna, ir@islandsbanki.is