Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 27. september 2023.
Boðnir verða út flokkarnir ISB CBF 27 og ISB CBI 29.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokkanna ISB CB 23 og ISB CBI 24 eiga þess kost að selja bréf í flokkunum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfanna er fyrirfram ákveðið og hreint verð í ISB CB 23 er 99,8118 (ávöxtunarkrafa 9,65%) og ISB CBI 24 er 99,5810 (ávöxtunarkrafa 4,50%).
Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 4. október 2023.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 27. september 2023.