Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Large Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Storbank |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Íslandsbanki verður með útboð á þremur flokkum sértryggðra skuldabréfa miðvikudaginn 4. mars 2026. Boðinn verður út nýr sértryggður flokkur ISB CBF 28 ásamt flokkunum ISB CB 31 og ISB CBI 32.
ISB CBF 28 er óverðtryggður skuldabréfaflokkur með mánaðarlegum vaxtaafborgunum á fljótandi 1 mánaða REIBOR vaxtagrunni og lokagjalddaga höfuðstóls 11. mars 2028. Útboð ISB CBF 28 verður með þeim hætti að öll skuldabréfin verða seld á sama verði eða hæsta samþykkta álagi ofan á 1 mánaða REIBOR.
Fyrirkomulag útboðs flokkanna ISB CB 31 og ISB CBI 32 verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða seld á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni.
Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ISB CBI 26 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð á ISB CBI 26 er fyrirfram ákveðið og er hreint verð 100,36.
Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 11. mars 2026.
Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Íslandsbanka fyrir sértryggð skuldabréf. Grunnlýsingu ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla: Sértryggð skuldabréf grunnlýsing.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 4. mars 2026.