Tisdag 1 Juli | 06:42:29 Europe / Stockholm
2025-06-10 15:02:00

Moody's Ratings (Moody's) hefur í dag staðfest A3 lánshæfismat Íslandsbanka

Moody's Ratings (Moody's) hefur í dag staðfest A3 lánshæfismat Íslandsbanka, A2 langtíma- og P-1 skammtíma lánshæfismat fyrir innlán, og A3 lánshæfismat fyrir almenn ótryggð skuldabréf með stöðugum horfum. Langtíma lánshæfismat innlána og lánshæfismat bankans sem útgefanda eru með stöðugum horfum. Grunnlánshæfismat (BCA) og aðlagað BCA hefur verið staðfest sem baa2.
 
Staðfestingin kemur í kjölfar tilkynningar Íslandsbanka hf. þar sem lýst er yfir áhuga á samrunaviðræðum við Kviku banka hf.
 
Tilkynningu Moody's má finna í viðhengi.