Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Stjórn Íslandsbanka hf. (bankinn) barst bréf frá bankastjóra og stjórnarformanni Arion banka hf. (Arion), þann 14. febrúar síðastliðinn, þar sem óskað var eftir því að bankarnir hæfu samrunaviðræður. Stjórn bankans þakkar Arion fyrir sýndan áhuga á samruna við Íslandsbanka.
Stjórn Íslandsbanka hefur fjallað vandlega um málið og eftir ítarlega yfirferð og greiningu er það niðurstaða stjórnar bankans að hefja ekki samrunaviðræður við Arion.
Íslandsbanki hefur markað sér mjög skýra stefnu þar sem áhersla er lögð á arðsemi, framsækni, þjónustu og upplifun viðskiptavina. Bankinn hefur horft til raunhæfra innri og ytri vaxtartækifæra sem styðja við stefnu bankans. Hjá Íslandsbanka er stöðugt unnið að aukinni skilvirkni og hagræðingu, sem mun skila sér til viðskiptavina og hluthafa bankans. Eigið fé bankans er töluvert umfram markmið, sem gefur tækifæri til arðbærs vaxtar. Enn fremur telur stjórn bankans það vera mikið hagsmunamál fyrir alla hluthafa Íslandsbanka að söluferli á eignarhlut ríkisins í bankanum gangi greiðlega fyrir sig.
Stjórn bankans tekur undir ýmis sjónarmið í bréfi Arion um mögulegt hagræði sem gæti hlotist af samrunum á innlendum bankamarkaði og að lækka megi kostnað með auknu samstarfi um innviði bankaþjónustu, lægri sköttum og hóflegum eiginfjárkröfum. Hins vegar er það mat stjórnar Íslandsbanka að mjög ólíklegt sé að sá samruni sem stjórn Arion leggur til fáist samþykktur af Samkeppniseftirlitinu við núverandi aðstæður nema gegn ströngum og afar íþyngjandi skilyrðum.
Íslandsbanki mun leitast eftir samtali við stjórnvöld, Seðlabanka Íslands og aðra hagsmunaaðila um það hvernig auka megi samstarf um innviði fjármálakerfisins í því skyni að ná fram aukinni hagræðingu til hagsbóta fyrir viðskiptavini og hluthafa og á sama tíma efla samkeppni á fjármálamarkaði.
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. Lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi viðbrögð Íslandsbanka við áhuga Arion banka hf. á samrunaviðræðum sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055