Tisdag 16 December | 07:28:53 Europe / Stockholm

Prenumeration

Kalender

Est. tid*
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-04 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-27 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-28 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-05 - Kvartalsrapport 2021-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorFinans
IndustriStorbank
Íslandsbanki är verksamma inom finanssektorn. Idag erbjuder banken ett brett utbud av finansiella tjänster, huvudsakligen inriktat mot små- och medelstora företagskunder. Tjänsteutbudet är brett och inkluderar exempelvis kapitalförvaltning samt lånefinansiering. Utöver huvudverksamheten erbjuds diverse kringtjänster. Bolaget bedriver verksamhet runtom den isländska hemmamarknaden.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2025-12-15 20:10:00

Væntanlegur hluthafafundur Íslandsbanka í janúar 2026 þar sem stjórnarkjör verður á dagskrá.

Stjórn Íslandsbanka hefur borist krafa frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða meira en 1/20 hlutafjár í bankanum um að boðað verði til hluthafafundar þar sem stjórnarkjör er á dagskrá, sbr. tilkynningu bankans til kauphallar þann 8. desember 2025. Tilnefningarnefnd gerir ráð fyrir að boðað verði til fundarins í síðasta lagi 22. desember 2025.

Tilnefningarnefnd Íslandsbanka gegnir ráðgefandi hlutverki þegar kemur að kjöri til stjórnar bankans. Á þeim hluthafafundum þar sem kjör stjórnar er á dagskrá leggur nefndin fram rökstuddar tillögur varðandi þá frambjóðendur sem hún telur best til þess fallna að taka sæti í stjórn bankans. Nánari upplýsingar um hlutverk tilnefningarnefndar og starfsreglur nefndarinnar má finna á vef Íslandsbanka.

Tilnefningarnefnd Íslandsbanka óskar eftir framboðum til stjórnar bankans sem vænst er að kjörin verði á hluthafafundi bankans í janúar 2026.

Framboðum skal skilað til tilnefningarnefndar á sérstöku eyðublaði gegnum vef bankans fyrir kl. 16:00 þann 22. desember 2025. Tilnefningarnefnd mun ekki leggja mat á framboð sem berast eftir þann tíma. Nefndin mun birta tillögur sínar í síðasta lagi fimm dögum fyrir hluthafafund.

Athugið að störf tilnefningarnefndar og skilafrestur framboða til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar bankans áður en almennur framboðsfrestur rennur út, sem er fimm (5) dögum fyrir hluthafafund bankans.  

Vilji hluthafar koma sjónarmiðum á framfæri við nefndina er varða störf hennar í aðdraganda hluthafafundar, er þeim bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd í gegnum netfangið tilnefningarnefnd@islandsbanki.is eigi síðar en 22. desember  2025.