Marel: Hluthafar JBT samþykkja fyrirhugaða sameiningu við Marel
Marel hefur verið upplýst um að á hluthafafundi John Bean Technologies Corporation (JBT), sem fram fór fyrr í dag, hafi heimild til útgáfu nýs hlutafjár í tengslum við valfrjálst tilboð félagsins í allt útistandandi hlutafé Marel hf. verið samþykkt. Frekari upplýsingar um hluthafafundinn og niðurstöður hans má finna í tilkynningu JBT, sem er aðgengileg hér.
Vinnu JBT og Marel við að uppfylla önnur skilyrði tilboðsins miðar vel. Félögin hafa skilað inn tilkynningum í viðeigandi löndum og landssvæðum um fyrirhugaða sameiningu og eiga nú í samskiptum við eftirlitsaðila um samþykki þeirra svo hægt verði að ganga frá viðskiptunum. Valfrjálst tilboð JBT rennur út kl. 17:00 að íslenskum tíma þann 2. september 2024, nema tilboðstíminn verði framlengdur í samræmi við samkomulag milli félaganna frá því í apríl 2024. JBT vinnur sömuleiðis að undirbúningi umsóknar um tvískráningu hlutabréfa félagsins á Nasdaq Iceland. Er þess vænst að viðskiptin gangi í gegn fyrir lok árs 2024.