Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Industri |
Industri | Jordbruk |
Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar (e. Chief Operating Officer), hefur ákveðið að láta af störfum hjá Marel. Staðan verður í kjölfarið lögð niður og verkefni færast á aðra stjórnendur í fyrirtækinu. Linda mun vera stjórnendum innan handar til að tryggja örugga samfellu í yfirfærslu verkefna innan félagsins.
Linda hefur starfað hjá Marel frá árinu 2009, fyrst sem yfirmaður fjárstýringar og fjárfestatengsla þar til hún tók við starfi fjármálastjóra árið 2014 og hefur verið í núverandi starfi frá árinu 2022.
Árni Sigurðsson, forstjóri Marel:
„Ég vil þakka Lindu Jónsdóttur kærlega fyrir hennar mikilvæga framlag á fimmtán ára ferli sínum hjá Marel. Linda hefur verið lykilmanneskja í framkvæmdastjórn félagsins og átt mikilvægan þátt í vexti og framþróun félagsins undanfarin ár. Við hjá Marel óskum henni alls hins besta og farsældar í hennar framtíðarverkefnum.“