Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Industri |
Industri | Jordbruk |
Marel hefur ráðið Sebastiaan Boelen í stöðu fjármálastjóra frá og með deginum í dag. Sebastiaan býr yfir 25 ára reynslu á sviði fjármála og rekstrar í alþjóðlegum fyrirtækjum og hefur bæði hollenskt og breskt ríkisfang. Reynsla hans spannar mismunandi svið iðnaðar, þar á meðal framleiðslu, matvæla, drykkjarfanga og tækni, þar sem hann hefur náð góðum árangri í bættri rekstrarafkomu. Sebastiaan var áður hjá Southern Water í Bretlandi þar sem hann var fjármálastjóri samstæðunnar í fjögur ár. Fyrir það starfaði Sebastiaan við fjármálastjórn og rekstur, meðal annars hjá Arrow Global, SPI Group og Black & Decker.
Eftir tæplega 10 ára starf hafa Marel og Stacey Katz, fráfarandi fjármálastjóri, komist að samkomulagi um starfslok hennar hjá félaginu. Stacey mun vera félaginu innan handar sem ráðgjafi út fjárhagsárið til að tryggja góða yfirfærslu á ábyrgð og verkefnum.
Árni Sigurðsson, forstjóri Marel:
“Ég vil bjóða Sebastiaan innilega velkominn til Marel. Hann er afar reynslumikill fjármálastjóri og ég hlakka til að fá hann til starfa. Alþjóðleg og yfirgripsmikil reynsla Sebastiaan mun nýtast félaginu vel til að grípa þau viðamiklu tækifæri sem í félaginu búa og tryggja áframhaldandi vöxt og viðgang í takt við fjárhagsmarkmið félagsins.
Fyrir hönd Marel vil ég þakka Stacey Katz fyrir vel unnin störf og mikilvægt framlag hennar í gegnum árin, þá sérstaklega í áskorunum síðustu ára. Við óskum henni alls hins besta og farsældar í framtíðarverkefnum.“