Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Industri |
Industri | Jordbruk |
Aðalfundur Marel hf. verður haldinn rafrænt og í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, miðvikudaginn 20. mars nk., kl. 16:00.
Skráning á fundinn er skilyrði fyrir þátttöku á fundinum. Til þess að hægt sé að tryggja tímanlega úrvinnslu á beiðnum hluthafa um aðgangsupplýsingar skulu hluthafar hafa skráð sig á fundinn fyrir 18. mars klukkan 23:59. Athygli er vakin á að skráning verður að hafa borist fyrir þann tíma og ekki verður hægt að skrá sig síðar.
Bent er á að hluthafar sem eiga bæði hlutabréf skráð á Nasdaq á Íslandi og í Euronext kauphöllinni í Amsterdam, verða að fara eftir leiðbeiningum fyrir hvorn markað um sig.
Hluthafar sem eiga hlutabréf skráð á Nasdaq á Íslandi skrá þátttöku á aðalfundinn í gegnum vefgátt LUMI AGM á www.lumiconnect.com/meeting/marelagm2024 og fá í kjölfar skráningar send aðgangsauðkenni til að taka þátt í fundinum og greiða atkvæði.
Hluthafar sem eiga hlutabréf skráð í Euronext kauphöllinni í Amsterdam skrá þátttöku á aðalfundinn með milligöngu vörsluaðila hlutabréfanna. ABN AMRO er umboðsaðili Marel vegna hlutabréfa sem skráð eru í Euronext kauphöllinni og vörsluaðilar skrá þátttöku á aðalfundinn í gegnum vefsíðuna www.abnamro.com/intermediary. Hluthafar geta einnig skráð sig á aðalfundinn í gegnum vefsíðuna www.abnamro.com/evoting.
Endanlegar tillögur, dagskrá, tillögur tilnefningarnefndar og önnur skjöl eru aðgengileg á www.marel.com/agm.