Marel: Taka hlutabréfa úr viðskiptum
2024-12-27 17:20:00
Euronext Amsterdam N.V. („Euronext“) hefur samþykkt beiðni Marel hf. („Marel“ eða „félagið“) um að taka hlutabréf félagsins úr viðskiptum, sbr. tilkynningu frá félaginu dags. 23. desember 2024, þar sem kom fram að félagið hefði óskað eftir töku hlutabréfanna úr viðskiptum.
Síðasti viðskiptadagur með hlutabréf Marel (auðkenni: MAREL, ISIN: IS0000000388) á Euronext er áætlaður 3. janúar 2025 og afskráningardagur 6. janúar 2025.
Nasdaq Iceland hf. hefur þegar birt samþykki sitt um að taka hlutabréf félagsins úr viðskiptum, sjá hér: Marel hf. - taka hlutabréfa úr viðskiptum