09:27:29 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Prenumeration

Kalender

2025-03-26 Årsstämma 2025
2025-02-12 Bokslutskommuniké 2024
2024-10-30 Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-24 Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-07 Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-18 Årsstämma 2024
2024-02-07 Bokslutskommuniké 2023
2023-10-23 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-26 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-03 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-22 Årsstämma 2023
2023-02-08 Bokslutskommuniké 2022
2022-11-02 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-07-27 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-04-27 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-16 Årsstämma 2022
2022-02-02 Bokslutskommuniké 2021
2021-10-20 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-21 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-28 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-18 X-dag ordinarie utdelning MAREL 8.50 ISK
2021-03-17 Årsstämma 2021
2021-02-03 Bokslutskommuniké 2020
2020-03-20 X-dag ordinarie utdelning MAREL 7.99 ISK
2020-03-18 Årsstämma 2020
2020-02-06 Bokslutskommuniké 2019
2019-10-23 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-07-24 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-04-29 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-07 X-dag ordinarie utdelning MAREL 7.63 ISK
2019-03-06 Årsstämma 2019
2019-02-06 Bokslutskommuniké 2018
2018-10-31 Kvartalsrapport 2018-Q3
2018-01-31 Bokslutskommuniké 2017
2017-10-25 Kvartalsrapport 2017-Q3
2017-07-26 Kvartalsrapport 2017-Q2
2017-05-03 Kvartalsrapport 2017-Q1
2017-03-03 X-dag ordinarie utdelning MAREL 2.58 ISK
2017-03-02 Årsstämma 2017
2017-02-08 Bokslutskommuniké 2016
2016-10-26 Kvartalsrapport 2016-Q3
2016-07-27 Kvartalsrapport 2016-Q2
2016-04-25 Kvartalsrapport 2016-Q1
2016-03-03 X-dag ordinarie utdelning MAREL 2.25 ISK
2016-03-02 Årsstämma 2016
2016-02-03 Bokslutskommuniké 2015
2015-10-28 Kvartalsrapport 2015-Q3
2015-07-29 Kvartalsrapport 2015-Q2
2015-04-29 Kvartalsrapport 2015-Q1
2015-03-04 Årsstämma 2015
2015-02-04 Bokslutskommuniké 2014
2014-10-22 Kvartalsrapport 2014-Q3
2014-07-24 Analytiker möte 2014
2014-07-23 Kvartalsrapport 2014-Q2
2014-04-28 Kvartalsrapport 2014-Q1
2014-02-05 Bokslutskommuniké 2013
2013-10-24 Analytiker möte 2013
2013-10-23 Kvartalsrapport 2013-Q3
2013-07-24 Kvartalsrapport 2013-Q2
2013-04-23 Kvartalsrapport 2013-Q1
2013-03-06 Årsstämma 2013
2013-02-06 15-7 2013
2013-01-30 Bokslutskommuniké 2012
2012-10-25 Kvartalsrapport 2012-Q3
2012-07-25 Kvartalsrapport 2012-Q2
2012-04-26 Kvartalsrapport 2012-Q1
2012-02-29 Årsstämma 2012
2012-02-01 Bokslutskommuniké 2011
2011-10-26 Kvartalsrapport 2011-Q3
2011-07-28 Kvartalsrapport 2011-Q2
2011-03-02 Årsstämma 2011

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorIndustri
IndustriJordbruk
Marel är en leverantör av bearbetningssystem för fisk, skaldjur och kött. Maskinerna används inom livsmedelsindustrin vid bearbetning och förpackning av råvaror. Bolaget levererar, förutom maskiner, även installation och teknisk support, maskinservice samt reservdelar. Verksamhet innehas på global nivå och styrs via etablerade dotterbolag med vardera affärsinriktning, samt via samarbetspartners.
2023-12-13 22:05:00

Marel hefur borist uppfærð óskuldbindandi viljayfirlýsing frá John Bean Technologies Corporation („JBT“) varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í félaginu. Marel vísar í fyrri tilkynningu til markaðar þann 24. nóvember 2023 varðandi fyrri óskuldbindandi viljayfirlýsingu frá JBT.

Í viljayfirlýsingunni kemur skýrt fram að ekki sé um að ræða lagalega bindandi skuldbindingu og að verði valkvætt yfirtökutilboð lagt fram á síðari stigum, yrði slíkt tilboð háð margvíslegum skilyrðum. Í uppfærðu viljayfirlýsingunni er vísað til óafturkallanlegrar yfirlýsingar Eyris Invest hf., eiganda 24,7% hlutafjár í Marel, um stuðning Eyris Invest hf. við fyrri viljayfirlýsingu sem og betra tilboð frá JBT ef svo bæri undir. Jafnframt er í viljayfirlýsingunni vísað til samkomulags Eyris Invest hf. og JBT um að Eyrir gangi ekki til viðræðna við aðra en JBT um sölu hlutafjár Eyris í Marel.

Í viljayfirlýsingunni koma fram eftirfarandi lykilskilmálar, sem háðir eru jákvæðri afstöðu stjórnar Marel:

  1. Fyrirvarar: Óskuldbindandi viljayfirlýsingin kveður á um að valfrjálst yfirtökutilboð verði aðeins lagt fram að undangenginni ásættanlegri niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og stjórnarsamþykki JBT. Þá kemur fram að mögulegt valfrjálst yfirtökutilboð JBT, þegar og ef það verður lagt fram, verði háð eftirfarandi fyrirvörum:
    1. Samþykki viðeigandi eftirlitsaðila
    2. Samþykki hluthafa JBT
    3. Að a.m.k. 90% hluthafa Marel samþykki tilboðið
  2. Tillaga að verðmati/greiðslufyrirkomulagi: Í óskuldbindandi viljayfirlýsingu JBT er fyrirhugað verð 3,40 evrur á hlut (511 krónur á hlut miðað við skiptigengi ISK/EUR 150,3), fyrir allt útistandandi hlutafé í Marel. Þá er tillaga JBT að verðmati byggð á þeirri forsendu að útistandandi hlutir í Marel séu 754 milljónir og staða áhvílandi lána nemi 827 milljónum evra.
  3. Endurgjald: Óskuldbindandi viljayfirlýsingin gerir ráð fyrir sveigjanleika í samsetningu endurgjalds eða að allt að 50% af endurgjaldinu verði greitt með reiðufé og allt að 100% verði í formi hlutabréfa í sameinuðu félagi JBT og Marel. Það kemur jafnframt fram að hluthafar Marel muni eiga u.þ.b. 38% af hlutum í sameinuðu félagi eftir möguleg viðskipti ef byggt er á 25% hlutfalli reiðufjár og 75% í hlutabréfum. Ef byggt er á 100% greiðslu í hlutabréfum myndu hluthafar Marel eiga um 45% hlutafjár í sameinuðu félagi. Engar frekari upplýsingar koma fram eða liggja fyrir um gengi hluta í JBT eða hugsanlegt skiptigengi.
  4. Annað: JBT er tilbúið að íhuga skráningu á Nasdaq Iceland til viðbótar við núverandi skráningu hlutabréfa JBT á New York Stock Exchange (NYSE).

JP Morgan er fjármálaráðgjafi Marel og lagalegir ráðgjafar eru Baker McKenzie (Bandaríkin), BBA/Fjeldco (Ísland), og Osborne Clarke (Holland).

Marel mun fara yfir og meta framangreinda óskuldbindandi viljayfirlýsingu af kostgæfni með hliðsjón af langtímahagsmunum félagsins og allra hluthafa þess. Ekki liggur fyrir nein vissa um hvort umrædd yfirlýsing muni leiða til formlegs skuldbindandi yfirtökutilboðs, eða skilmála þess.

Marel mun halda markaðsaðilum tímanlega upplýstum um gang mála í samræmi við lögbundna upplýsingaskyldu félagsins.

Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger 2022 myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa um 8.000 manns í yfir 30 löndum. Tekjur Marel námu um 1,7 milljarði evra árið 2022 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir