Marel: Uppgjör annars ársfjórðungs birt 24. júlí, afkomufundur í streymi 25. júlí 2024
2024-07-17 14:40:00
Marel hf. mun birta uppgjör annars ársfjórðungs 2024 eftir lokun markaða þann 24. júlí 2024.
Afkomufundur með markaðsaðilum – beint streymi
Fimmtudaginn 25. júlí 2024 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur í beinu streymi fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Þar munu Árni Sigurðsson forstjóri og Sebastiaan Boelen fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á öðrum ársfjórðungi.
Athugið að fundurinn verður eingöngu rafrænn. Fundinum verður streymt beint á Zoom og upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.
Fjárhagsdagatal
- 3F 2024 – 30. október 2024
- 4F 2024 – 12. febrúar 2025
- Aðalfundur – 26. mars 2025