Marel: Uppgjör þriðja ársfjórðungs birt 30. október, afkomufundur í streymi 31. október 2024
2024-10-23 18:30:00
Marel hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2024 eftir lokun markaða þann 30. október 2024.
Afkomufundur með markaðsaðilum – beint streymi
Fimmtudaginn 31. október 2024 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur í beinu streymi fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Þar munu Árni Sigurðsson forstjóri og Sebastiaan Boelen fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á þriðja ársfjórðungi.
Athugið að fundurinn verður eingöngu rafrænn. Fundinum verður streymt beint á Zoom og upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.
Skráning fer fram hér.