Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Tjänster |
Industri | IT-konsult & onlinetjänster |
Origo hf. mun birta uppgjör 4. ársfjórðungs og ársins 2022 eftir lokun markaða fimmtudaginn 2. febrúar. Origo býður fjárfestum og markaðsaðilum til fjárfestafundar föstudaginn 3. febrúar.
Á fundinum munu Jón Björnsson forstjóri og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs kynna rekstur og afkomu fjórða ársfjórðungs og ársins 2022. Í kjölfarið á kynningunni verður opnað fyrir spurningar.
Kynningin hefst kl. 08:30 og verður haldin í húsnæði Origo að Borgartúni 37, 105 Reykjavík. Einnig er hægt að fylgjast með fundinum í gegnum netstreymi.
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast hér: https://www.origo.is/um-origo/fjarfestar
Skráning á fundinn fer fram hér: https://www.origo.is/fjarfestar/fjarfestakynning
Nánari upplýsingar
Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 825-9001 eða gp@origo.is