15:01:04 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Prenumeration

Kalender

2021-03-05 Ordinarie utdelning ORIGO 0.00 ISK
2021-03-04 Årsstämma 2021
2021-01-28 Bokslutskommuniké 2020
2020-10-21 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-19 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-04-29 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-06 Ordinarie utdelning ORIGO 0.00 ISK
2020-03-05 Årsstämma 2020
2020-01-29 Bokslutskommuniké 2019
2019-10-31 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-22 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-07 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-08 Ordinarie utdelning ORIGO 0.00 ISK
2019-03-07 Årsstämma 2019
2019-01-30 Bokslutskommuniké 2018
2018-03-02 Årsstämma 2018
2018-01-31 Bokslutskommuniké 2017

Beskrivning

LandIsland
ListaSmall Cap Iceland
SektorTjänster
IndustriIT-konsult & onlinetjänster
Origo är ett IT-bolag. Idag levererar bolaget digitala lösningar, vilket inkluderar applikationsutveckling, systemintegration, samt tillhörande teknisk support. Övriga tjänster inkluderar molnbaserade lönesystem samt personalhanteringssystem. Tjänsterna används huvudsakligen av medelstora- och stora företagskunder inom finans, hälsa- och sjukvård, samt industri. Bolaget innehar verksamhet på global nivå, med störst verksamhet inom den nordiska marknaden.
2023-02-24 18:05:00

Þann 19. janúar 2023 gerði AU 22 ehf., félag í fullri eigu Umbreytingar II slhf., framtakssjóðs í rekstri Alfa Framtaks ehf., hluthöfum Origo hf. valfrjálst tilboð í skilningi X. og XI. kafla laga nr. 108/2007 um yfirtökur („lög um yfirtökur“), með þeim skilmálum og skilyrðum sem fram komu í opinberu tilboðsyfirliti dagsettu sama dag. Gildistími tilboðsins rann út kl. 13:00 þann 22. febrúar 2023. Um helmingur hluthafa Origo hf. samþykkti tilboðið og bárust samþykki fyrir alls 47.193.948 hlutum í Origo hf., eða sem nemur 33,71% alls hlutafjár. Samkeppniseftirlitið tilkynnti AU 22 ehf. þann 17. febrúar 2023 að ekki væru forsendur til þess að aðhafast vegna tilboðsins og þar með var eina skilyrði tilboðsins uppfyllt. Greiðsla til þeirra sem samþykktu tilboðið og afhending hluta til AU 22 ehf. fer fram 1. mars 2023.

Á þeim degi sem tilboðið var sett fram fór AU 22 ehf. með 41.010.308 hluti í Origo hf. sem samsvarar 29,29% af hlutafé félagsins. Eftir tilboðið fer AU 22 ehf. með 88.204.256 hluti í Origo hf. sem samsvarar 63,00% af hlutafé félagsins.
Að loknu tilboði hefur AU 22 ehf. því öðlast yfirráð í Origo hf. í skilningi laga um yfirtökur en þar sem valfrjálsa tilboðið uppfyllti skilyrði ákvæða 2.-4. mgr. 103. gr. laganna eins og um skyldubundið yfirtökutilboð væri að ræða verður AU 22 ehf. ekki skylt að gera yfirtökutilboð í samræmi við 100. gr. laganna.

„Við erum þakklát fyrir þann góða hljómgrunn sem tilboð okkar hlaut meðal hluthafa Origo, en um helmingur hluthafa félagsins samþykkti tilboðið. Ljóst er að með þessu myndar Alfa Framtak mikilvæga kjölfestu í félaginu og þeirri umbreytingu sem framundan er. Við hlökkum til að raungera framtíðarsýn okkar í góðu samstarfi með núverandi stjórnendum Origo og öðrum hluthöfum.“ segir Gunnar Páll Tryggvason framkvæmdastjóri Alfa Framtaks.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var umsjónaraðili valfrjálsa tilboðsins fyrir hönd AU 22 ehf. og LEX veitti AU 22 ehf. lögfræðilega ráðgjöf í tilboðsferlinu.