Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Tjänster |
Industri | IT-konsult & onlinetjänster |
Á fundi stjórnar Origo hf. þann 26. maí 2021 var ákveðið að veita tilteknum lykilstarfsmönnum félagsins kauprétti að allt að 16.500.000 hlutum í félaginu, þar af 7.440.000 til framkvæmdarstjórnar.
Kaupréttarsamningarnir eru veittir í því skyni að samtvinna hagsmuni félagsins og lykilstarfsmanna til lengri tíma. Skilmálar kaupréttarsamninganna eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 6. mars 2020 og starfskjarastefnu sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 4. mars 2021.
Meginefni kaupréttarsamninganna er sem hér segir:
- Innlausnarverð kaupréttanna er kr. 51,7 á hlut sem jafngildir dagslokagengi hlutabréfa í félaginu á NASDAQ Iceland á úthlutunardegi og skal kaupverðið leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að vera ákveðnar á ávinnslutíma kaupréttanna.
- Ávinnslutími er þrjú til fimm ár frá úthlutun. Innlausnartímabil skal vera þegar í stað eftir ávinnslutíma og/eða inna árs þaðan í frá (innan sérstakra innlausnartímabila). Þó þannig að komi til þess að breyting verði á yfirráðum félagsins, eins og fjallað er um í 100. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, ávinnast allir útistandandi kaupréttir þegar í stað.
- Almennt skulu kaupréttir falla niður fyrir ávinnslutíma ef ráðningarsambandi kaupréttarhafa við félagið er slitið.
- Kaupréttarhafar skuldbinda sig meðan þeir starfa hjá félaginu til þess að halda a.m.k. 10% þeirra hluta sem þeir kaupa á grundvelli kaupréttar.
Í kjölfar úthlutunar kaupréttanna nemur heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Origo hf. hefur veitt lykilstarfsmönnum sínum 16.500.000 hlutum eða um 3,8% hlutafjár í félaginu. Heildarkostnaður félagsins vegna kaupréttarsamninga sem hér er tilkynnt um á næstu fimm árum er áætlaður um 175 mkr byggt á reiknilíkani Black-Scholes.
Kaupréttir sem veittir eru stjórnendum (framkvæmdastjórn) Origo hf. eru sem hér segir:
Nafn | Staða | Veittur kaupréttur | Áður veittur kaupréttur | Hlutafjáreign | Hlutafjáreign fjárhagslega tengdra aðila |
Jón Björnsson | Forstjóri | 930.000 | - | 560.000 | - |
Gunnar Petersen | Framkvæmdast. Fjármála | 930.000 | - | 585.860 | - |
Dröfn Guðmundsdóttir | Framkvæmdast. Mannauðssviðs | 930.000 | - | 105.631 | - |
Ingimar Guðjón Bjarnason | Framkvæmdast. Viðskiptalausna | 930.000 | - | 299.609 | - |
Hákon Sigurhansson | Framkvæmdast. Hugbúnaðalausna | 930.000 | - | 281.950 | - |
Örn Þór Alfreðsson | Framkvæmdarst. Þjónustulausna | 930.000 | - | - | - |
Sylvía Kristín Ólafsdóttir | Framkvæmdarst. Viðskiptaþróunar og markaðsmála | 930.000 | - | - | - |
Gunnar Zöega | Framkvæmdarst. Notendalausna | 930.000 | - | 52.247 | - |