Bifogade filer
Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Small Cap Iceland |
Sektor | Tjänster |
Industri | IT-konsult & onlinetjänster |
Verður haldinn fimmtudaginn 4. mars 2021 kl. 14.00
Dagskrá fundarins
- Skýrsla stjórnar um starfsemi þess síðastliðið starfsár
- Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins á reikningsárinu
- Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og fyrir setu í undirnefndum
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu
- Kosning stjórnar
- Kosning endurskoðanda
- Tillaga stjórnar um staðfestingu á skipan tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd
- Tillögur frá hluthöfum
- Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum sbr. 55. gr. hlutafélagalaga
- Önnur mál
Skráning hluthafa á fundinn fer fram á heimasíðu félagsins https://www.origo.is/um-origo/adalfundur. Fundurinn fer fram í gegnum tæknibúnaðinn Lumiglobal þar sem hluthafar geta fylgst með aðalfundarstörfum og tekið þátt í atkvæðagreiðslum. Nánari leiðbeiningar og upplýsingar um rafræna þátttöku, aðgangsorð og atkvæðagreiðslu er að finna á heimasíðu félagsins. Sérstök athygli er vakin á því að u.þ.b. fimm virka daga getur tekið að fá sent aðgangsorð og hluthöfum því bent á að sækja um aðgangsorð tímanlega.
Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með nægilegum fyrirvara til að unnt sé að taka mál til meðferðar á fundinum. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 14.00 mánudaginn 22. febrúar 2021. Tillögur skulu berast á netfangið stjorn@origo.is.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Aðrar upplýsingar
Endanleg dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins frá og með 18. febrúar 2021 í samræmi við samþykktir félagsins. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Tilkynningar um framboð skulu berast á stjorn@origo.is. Tilkynnt verður um framboð til stjórnar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn.
Tillaga tilnefningarnefndar félagsins um samsetningu stjórnar munu vera aðgengilegar á heimasíðu félagsins. Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Tillaga stjórnar um staðfestingu á skipan tveggja nefndarmanna í tilnefningarnefnd er aðgengileg á heimasíðu félagsins.
Reykjavík, 11. febrúar 2021,
stjórn Origo hf.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á heimasíðu félagsins, https://www.origo.is/um-origo/adalfundur