Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | First North Iceland |
Sektor | Sällanköp |
Industri | Gaming |
Stjórn Solid Clouds hf. boðar til aðalfundar föstudaginn 28. apríl 2023, kl 16:00 í aðalsal Arion banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
1. Kosning fundarstjóra
2. Skýrsla stjórnar um rekstur og starfsemi félagsins síðastliðið rekstrarár
3. Staðfesting ársreiknings félagsins fyrir síðastliðið rekstrarár
4. Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á síðastliðnu rekstrarári
5. Starfskjarastefna félagsins lögð fram til samþykktar
6. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn félagsins
7. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins
8. Kjör endurskoðanda félagsins
9. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna félagsins og undirnefnda
10. Önnur mál
10.1. Kynning á framþróun nýjasta leik félagsins, Starborne Frontiers
Dagskrá fundarins, tilhögun og fundargögn, þ.á.m. tillögur stjórnar, verða aðgengileg á vefsetri félagsins, https://www.solidclouds.com/investors/agm2023.
Að lokinni dagskrá fundarins verður boðið upp á léttar veitingar í húsakynnum Arion banka.