Söndag 22 December | 18:10:26 Europe / Stockholm

Prenumeration

Beskrivning

LandIsland
ListaFirst North Iceland
SektorSällanköp
IndustriGaming
Solid Clouds är en spelutvecklare inriktade mot MMO-genren. Idag utvecklar, äger och publicerar bolaget ett utbud av spel anpassade för diverse konsolsystem, datorer samt smarttelefoner. Verksamheten bedrivs genom med störst närvaro inom Norden och Island. Exempel på lanserade och egenutvecklade spel inkluderar exempelvis Starborne.
2024-12-20 16:57:00

Stjórn Solid Clouds hf., kt. 600913-2550, boðar til hluthafafundar föstudaginn 10. janúar 2025, kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins, Eiðistorgi 17, 170 Seltjarnarnesi.

Stjórn Solid Clouds hf., kt. 600913-2550, boðar hér með til hluthafafundar föstudaginn 10. janúar 2025, kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins, Eiðistorgi 17, 170 Seltjarnarnesi.

Dagskrá fundarins:
1. Tillaga um að félagið gefi út skuldabréf með breytirétti og heimild stjórnar til að gefa út nýtt hlutafé fyrir allt að 200.000.000 kr. að nafnverði til að  gefa út hluti til að mæta kröfum vegna skuldabréfanna.
2. Heimild til handa stjórn til að hækka hlutafé um allt að 300.000.000 hluti að nafnverði með útgáfu nýrra hluta (án forgangsréttar).
3. Heimild til handa stjórn til að hækka hlutafé um allt að 100.000.000 hluti að nafnverði með útgáfu nýrra hluta (með forgangsrétti).
4. Tillaga um að fella brott núverandi ákvæði 4. mgr. 4.gr. samþykkta félagsins.
5. Önnur mál

Dagskrá fundarins og fundargögn, eru aðgengileg á vefsetri félagsins, https://www.solidclouds.com/investors/egm2025. Tillögur fyrir aðalfund eru viðhengi með fundarboði þessu.

Hluthafi og umboðsmaður hans getur skráð sig á hluthafafundinn á fundarstað frá og með kl. 14:30 á fundardegi. Einnig er unnt að forskrá sig til kl. 13:00 á fundardegi með því að senda tölvupóst með nafni og kennitölu á netfangið investors@solidclouds.com. Umboðsmaður sem hyggst skrá sig með tölvupósti þarf að framvísa undirrituðu umboði og útfylla umboðseyðublað og senda á sama netfang.

Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthafa gefst kostur á að láta umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd enda framvísi umboðsmaður undirrituðu umboði frá hluthafa, sbr. framangreint.

Til þess að tillaga frá hluthafa, sem leggja á fyrir fundinn, verði tekin þar til umræðu verður að skila tillögunni til stjórnar félagsins á netfangið investors@solidclouds.com í síðasta lagi fimm dögum fyrir fundinn.

Að lokinni dagskrá fundarins verður boðið upp á léttar veitingar í húsakynnum Solid Clouds hf.
 
Seltjarnarnes, 20. desember 2024
F.h. stjórnar Solid Clouds hf.
Eggert Árni Gíslason
stjórnarformaður