Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | First North Iceland |
| Sektor | Sällanköp |
| Industri | Gaming |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Stjórn Solid Clouds hf. boðar til aðalfundar fimmtudaginn 16. apríl 2026, kl 16:00 í höfuðstöðvum félagsins, Vegmúla 2, 108 Reykjavík.
Dagskrá fundarins:
- Skýrsla stjórnar um hag félagsins og rekstur þess á liðnu starfsári
- Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram ásamt athugasemdum endurskoðenda þess til samþykktar
- Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á síðastliðnu rekstrarári og ákvörðun um arðgreiðslur
- Kosning stjórnar og varamanna í stjórn félagsins
- Kjör endurskoðanda félagsins
- Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna félagsins
- Starfskjarastefna félagsins lögð fram til samþykktar
- Önnur mál
Fundargögn, þ.á m. tillögur stjórnar, eru aðgengileg á vefsetri félagsins, https://www.solidclouds.com/investors/agm2026.
Hluthafi og umboðsmaður hans getur skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá og með kl. 15:30 á fundardegi. Einnig er unnt að forskrá sig til kl. 14:00 á fundardegi með því að senda tölvupóst með nafni og kennitölu á netfangið investors@solidclouds.com. Umboðsmaður sem hyggst skrá sig með tölvupósti þarf að framvísa undirrituðu umboði og útfylla umboðseyðublað og senda á sama netfang.
Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthafa gefst kostur á að láta umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd enda framvísi umboðsmaður undirrituðu umboði frá hluthafa, sbr. framangreint.
Til þess að tillaga frá hluthafa, sem leggja á fyrir á fundinum, verði tekin þar til umræðu verður að skila tillögunni til stjórnar félagsins á netfangið investors@solidclouds.com í síðasta lagi fimm dögum fyrir fundinn.