Bifogade filer
Prenumeration
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | First North Iceland |
| Sektor | Sällanköp |
| Industri | Gaming |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Solid Clouds hf.: Ársreikningur ársins 2025
Lykiltölur. Allar fjárhæðir eru í m.kr. Samanburðartölur síðasta árs eru innan sviga.
- Leikjatekjur: 114,1 (99,2)
- Auglýsingakostnaður: 148,3 (134,5)
- Rekstrartap fyrir afskriftir, fjármunatekjur og fjármagnsgjöld: 116,0 (132,8)
- Tap tímabilsins: 260,7 (404,5)
- Heildareignir: 1.361,2 (1.174,7)
- Eiginfjárhlutfall: 95,7% (91,3%)
Helstu atriði úr rekstri ársins
Solid Clouds hf. gaf út breytanlegt skuldabréf í byrjun árs að höfuðstólsfjárhæð 175,0 millj. kr. með breytigengi 1. Bréfið bar 15% ársvexti. Í maí 2025 seldi félagið nýtt hlutafé að nafnverði 200,6 millj. kr. á genginu 1,5 og nam söluandvirðið 300,9 millj. kr. Í kjölfarið nýtti félagið breytirétt skuldabréfsins með því að breyta höfuðstól og uppsöfnuðum vöxtum í samtals 184,6 millj. hluti í félaginu.
Árið 2025 hófst með góðum markaðstölum á fyrsta ársfjórðungi, en í kjölfarið fylgdi krefjandi tímabil vegna tafa á fjármögnun sem neyddi félagið til að draga verulega úr markaðssetningu og slökkva alfarið á henni í maí. Samhliða þessum breytingum áttu sér stað breytingar í yfirstjórn þegar Stefán Gunnarsson og Stefán Björnsson viku frá félaginu, og var ráðist í umfangsmikla hagræðingu sem skilaði því að mánaðarleg föst útgjöld lækkuðu um allt að 50%. Eftir að utanaðkomandi markaðsstofa skilaði ekki tilætluðum árangri ákvað félagið að færa starfsemi við markaðssetningu sína að fullu innanhúss við upphaf fjórða ársfjórðungs. Sú ákvörðun bar skjótan árangur og batnaði arðsemi auglýsinga (ROAS) verulega á síðustu mánuðum ársins.
Samhliða rekstrarlegri hagræðingu náðist stór áfangi í vöruþróun með útgáfu Voidbreach uppfærslunnar í lok árs 2025. Með henni tókst félaginu að fylla í mikilvægt tómarúm í lokaleiks-kerfum Starborne Frontiers, sem lengdi líftíma spilara og jók varðveislu þeirra. Uppfærslan bauð upp á dýpri samvinnu í gegnum bandalög og nýjar áskoranir fyrir lengra komna, sem endurspeglaðist í því að virkni í samvinnukerfum þrefaldaðist eftir útgáfu. Árangurinn sýndi sig einnig í spilun kjarnahópsins, þar sem meðalfjöldi spilalota hvers spilara á mánuði ríflega tvöfaldaðist og fór úr u.þ.b. 600 í yfir 1.250 lotur í janúar 2026. Þessi þróun leggur traustan grunn að áformum félagsins um aukna útbreiðslu á nýjum markaðstorgum og frekari alþjóðavæðingu leiksins á komandi ári.