2025-03-28 18:15:00
Stjórn Solid Clouds hf. hefur ráðið til sín Verðbréfamiðlun Íslandsbanka til að sækja 225 milljónir króna í fyrirhugaðri fjármögnun frá hæfum fjárfestum, með möguleika á að hækka upphæðina í allt að 350 milljónir króna. Hlutabréfin verða boðin á genginu 2,25 krónur á hlut.
Markmið fjármögnunar félagsins er að styrkja fjárhagsstöðu þess og styðja við áframhaldandi vöxt og þróun á leiknum Starborne Frontiers. Verðbréfamiðlun Íslandsbanka mun sjá um innheimtu áskriftarloforða.