07:02:36 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Prenumeration

Beskrivning

LandIsland
ListaFirst North Iceland
SektorSällanköp
IndustriGaming
Solid Clouds är en spelutvecklare inriktade mot MMO-genren. Idag utvecklar, äger och publicerar bolaget ett utbud av spel anpassade för diverse konsolsystem, datorer samt smarttelefoner. Verksamheten bedrivs genom med störst närvaro inom Norden och Island. Exempel på lanserade och egenutvecklade spel inkluderar exempelvis Starborne.
2023-02-17 09:30:00

Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur lokið stórum þróunaráfanga fyrir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers, og er hann núna öllum aðgengilegur í snjalltækjaverslunum Apple og Google (e. app store). Hér er um að ræða fyrsta skrefið í útgáfuferli leiksins.

Gögn um hegðun spilara verða notuð til að þróa og fínstilla leikinn svo að hann nái tilskildum viðmiðunarmörkum varðandi tekjur og spilatíma hvers notanda. Þegar þessum markmiðum hefur verið náð er næsti stóri áfangi félagsins endanleg útgáfa leiksins.

Starborne Frontiers er hannaður fyrir snjalltæki en einnig verður hægt að spila hann í PC-útgáfu á næstu misserum. Um er að ræða hlutverkaleik þar sem spilarinn er í hlutverki leiðtoga sem safnar og uppfærir flota geimskipa til að kanna, skipuleggja og sigra Starborne heiminn sem er fullur af spennu og bardögum.

„Opnun leiksins fyrir almenning er risastór áfangi fyrir félagið og teymið sem hefur unnið hörðum höndum að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur. Við hlökkum til að fá viðbrögð spilara og hvetjum alla til að ná sér í leikinn frítt. Við nálgumst endanlega útgáfu leiksins en hann á bara eftir að verða betri eftir því sem við ítrum hann áfram“, segir Stefán Gunnarsson, forstjóri Solid Clouds.