Onsdag 12 Augusti | 20:51:19 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-02-10 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-04 17:00 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-12 17:00 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-12 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-19 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.36 ISK
2026-02-11 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-05 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-13 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-27 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 5.00 ISK
2025-02-12 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-06 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-14 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-02 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-25 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.00 ISK
2024-02-15 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-02 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-11 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-30 - Årsstämma
2023-02-15 - Bokslutskommuniké 2022
2022-02-24 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-25 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-26 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-27 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-04-21 - Årsstämma
2021-02-17 - Bokslutskommuniké 2020
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.24 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Kvika Banki bedriver bankverksamhet. Störst inriktning återfinns inom investment banking där bolaget erbjuder traditionell kapitalförvaltning, mäkleri och tillhörande rådgivning. Specialistkompetens återfinns inom erbjudandet av finansiella tjänster och investering, från räntebärande papper, aktier- och fondsparande, till fastighetsinvestering. Kunderna återfinns bland privat- och företagskunder samt institutioner.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Kvika banki hf.: Afkoma Kviku banka á öðrum ársfjórðungi 2026

2026-08-12 17:35:00

Stöðugar vaxtatekjur og kostnaðaraðhald skila sterkum grunnrekstri

Á stjórnarfundi þann 12. ágúst 2026 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir annan ársfjórðung og fyrstu sex mánuði ársins 2026.

Helstu atriði í afkomu annars ársfjórðungs (2F 2026):

  • Hagnaður af áframhaldandi starfsemi samstæðunnar fyrir skatta nam 1.545 m.kr. á 2F 2026, samanborið við 2.025 m.kr. á 2F 2025 og lækkaði um 480 m.kr. eða 23,7%.
  • Hagnaður af áframhaldandi starfsemi samstæðunnar eftir skatta nam 903 m.kr. á 2F 2026, samanborið við 1.439 m.kr. á 2F 2025 og lækkaði um 536 m.kr. eða 37,2%
  • Hreinar vaxtatekjur námu 3.013 m.kr. á 2F 2026, samanborið við 2.962 m.kr. á 2F 2025 og hækkuðu um 51 m.kr. frá fyrra ári eða 1,7%.
  • Vaxtamunur var 4,0% á 2F 2026, samanborið við 4,0% á 2F 2025.
  • Hreinar þóknanatekjur námu 1.416 m.kr. á 2F 2026, samanborið við 1.935 m.kr. á 2F 2025 og lækkuðu um 519 m.kr. frá fyrra ári eða 26,8%.
  • Aðrar rekstrartekjur námu 327 m.kr. á 2F 2026, samanborið við 231 m.kr. á 2F 2025  og hækkuðu um 96 m.kr. frá fyrra ári.
  • Rekstrarkostnaður nam 2.947 m.kr. á 2F 2026, samanborið við 2.981 m.kr. á 2F 2025  og lækkar um 34 m.kr. frá fyrra ári eða 1,1%.
  • Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 15,1% á 2F 2026, samanborið við 18,5% á 2F 2025.
  • Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi nam 0,21 kr. á 2F 2026, samanborið við 0,31 kr. á 2F 2025.

Helstu atriði efnahags þann 30.06.2026:

  • Innlán frá viðskiptavinum námu 201 ma.kr., samanborið við 173 ma.kr. í lok árs 2025 og jukust um 16,5% á tímabilinu.
  • Útlán til viðskiptavina voru 223 ma.kr., samanborið við 208 ma.kr. í lok árs 2025 og jukust um 7,6% á tímabilinu.
  • Heildareignir námu 376 ma.kr., samanborið við 343 ma.kr. í lok árs 2025.
  • Eigið fé samstæðunnar var 58 ma.kr., samanborið við 69 ma.kr. í lok árs 2025.
  • Eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) var 23,0%, samanborið við 26,8% í lok árs 2025.
  • Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 276%, samanborið við 404% í lok árs 2025.
  • Heildareignir í stýringu námu 449 ma.kr., samanborið við 469 ma.kr. í lok árs 2025.

Helstu atriði fyrri árshelmings 2026:

  • Hagnaður af áframhaldandi starfsemi samstæðunnar fyrir skatta nam 3.354 m.kr., samanborið við 2.726 m.kr. á sama tímabili árið 2025 og hækkaði um 628 m.kr. eða 23,0%.
  • Hagnaður af áframhaldandi starfsemi samstæðunnar eftir skatta nam 2.277 milljónum króna, samanborið við 1.625 m.kr. á sama tímabili árið 2025 og hækkaði um 652 m.kr. eða 40,2%.
  • Hreinar vaxtatekjur námu 6.279 milljónum króna, samanborið við 5.879 m.kr. á sama tímabili árið 2025 og hækkuðu um 6,8% frá fyrra ári.
  • Vaxtamunur var 4,3% á fyrstu sex mánuðum ársins 2026 samanborið við 4,1% á fyrstu sex mánuðum ársins 2025.
  • Hreinar þóknanatekjur námu 2.902 milljónum króna, samanborið við 3.455 m.kr. á sama tímabili árið 2025 og lækkuðu um 553 m.kr. eða 16,0%.
  • Aðrar rekstrartekjur námu 462 milljónum króna, samanborið við 243 m.kr. á sama tímabili árið 2025 og hækkuðu um 219 m.kr.
  • Rekstrarkostnaður nam 5.961 milljónum króna, samanborið við 6.071 milljónir króna á sama tímabili árið 2025 og lækkaði um 110 m.kr. eða 1,8%.
  • Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 15,6% á fyrstu sex mánuðum ársins 2026, samanborið við 13,3% á sama tímabili árið 2025.
  • Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi nam 0,52 kr., samanborið við 0,36 kr. á sama tímabili árið 2025.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Rekstur bankans á öðrum fjórðungi gekk prýðilega og mörg stór skref voru stigin í þá átt að auka arðsemi bankans til framtíðar. Fyrri árshelmingur var í heild sinni mjög góður og umtalsverð hagnaðaraukning milli ára.

Rúmlega 10 milljarða arður var greiddur til hluthafa í byrjun júní og það eigið fé sem bundið er í rekstrinum hefur lækkað samsvarandi. Einstaklega vel heppnað AT1 skuldabréfaútboð í byrjun fjórðungsins í Svíþjóð, að upphæð sem samsvarar 4 milljörðum króna gerði bankanum kleift að greiða út háan arð, en viðhalda engu að síður mjög sterkri eiginfjárstöðu.

Langbestu kjörum á erlendri skuldabréfaútgáfu Kviku var síðan náð í byrjun júní, þegar bankinn gaf út EUR 150 milljónir á kjörum sem samsvara um 1,65% álagi á millibankavexti. Þessi útgáfa gerir bankanum kleift að endurfjármagna umtalsvert dýrari erlenda fjármögnun síðar á árinu, sem styrkja mun vaxtamun, auk þess að fjármagna framtíðarvöxt lánabóka Kviku í erlendri mynt á lægri kjörum en Kviku hefur áður boðist.

Þóknanatekjur dragast umtalsvert saman milli ára, sem endurspeglar annars vegar mjög háar þóknanatekjur á öðrum fjórðungi 2025 vegna útboðs á hlut ríkisins í Íslandsbanka, en einnig áframhaldandi erfiðar markaðsaðstæður á íslenskum hlutabréfamarkaði.

Góður vöxtur var hins vegar í allri lánastarfsemi Kviku á fjórðungnum og jafnframt var mjög mikill innlánavöxtur. Þrátt fyrir þennan vöxt er rekstrarkostnaður bankans að lækka milli ára á tíma hárrar verðbólgu og mikilla launahækkana í samfélaginu. Ráðist var í erfiðar hagræðingaraðgerðir í byrjun júní, sem leiddu af sér rúmlega 100 milljón króna gjaldfærslu í fjórðungnum, en munu lækka enn frekar rekstrarkostnað bankans til framtíðar.

Það er mat stjórnar og stjórnenda að greiðsluþjónusta sé sú starfsemi sem bankinn stundi sem samræmist einna síst stefnu bankans og annarri starfsemi hans og hefur því verið ákveðið að setja Straum, dótturfélag bankans, í söluferli. Einkaviðræður um söluna standa nú yfir og vonast er til að henni ljúki fyrir árslok.

Vegna þeirra aðgerða sem að ofan greinir stefnir í, að öðru óbreyttu, að arðsemi rekstrar bankans á næstunni verði mjög góð. Dregið hefur verið umtalsvert úr eiginfjárbindingu með háum arðgreiðslum, AT1 útgáfu og kaupum á eigin bréfum. Rekstrarkostnaður bankans er nú lægri en hann hefur verið í mörg ár. Sterkur vöxtur lánabóka og innlána auk nýrra eignastýringarafurða munu skila sér í auknum tekjum og á sama tíma er fjármögnunarkostnaður bankans í erlendum gjaldmiðlum að lækka hratt.”


Kynningarfundur og fjárfestakynning
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 13. ágúst kl. 08:30 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á íslensku á eftirfarandi vefslóð:

https://kvika.is/kynning-a-uppgjori-6m-2026/

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á netfangið; fjarfestatengsl@kvika.is

Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.