Fredag 3 Juli | 20:37:36 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-06-05 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 2.35 ISK
2025-03-27 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 5.00 ISK
2024-03-25 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.00 ISK
2024-02-15 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-02 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-11 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-30 - Årsstämma
2023-02-15 - Bokslutskommuniké 2022
2022-02-24 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-25 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-26 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-27 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-04-21 - Årsstämma
2021-02-17 - Bokslutskommuniké 2020
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.24 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Kvika Banki bedriver bankverksamhet. Störst inriktning återfinns inom investment banking där bolaget erbjuder traditionell kapitalförvaltning, mäkleri och tillhörande rådgivning. Specialistkompetens återfinns inom erbjudandet av finansiella tjänster och investering, från räntebärande papper, aktier- och fondsparande, till fastighetsinvestering. Kunderna återfinns bland privat- och företagskunder samt institutioner.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Kvika banki hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar

2026-07-03 17:45:00

Á aðalfundi Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) þann 18. mars 2026 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa allt að 10% af útgefnum hlutum í félaginu, m.a. í þeim tilgangi að stjórn gæti komið á formlegri endurkaupaáætlun.

Á grundvelli framangreinds og að fenginni heimild Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, ákvað stjórn Kviku þann 3. júlí 2026 að nýta hluta heimildarinnar og koma á endurkaupaáætlun um framkvæmd kaupa á hlutum fyrir allt að 2.000.000.000 kr. að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 200.000.000, í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans. Í dag á Kvika 7.236.463 eigin hluti.

Íslandsbanki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar ákvarðanir um kaup á hlutum, þar á meðal um tímasetningu kaupanna, óháð Kviku. Framkvæmd endurkaupa verður þannig háttað að kaup hvers dags munu að hámarki nema 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf í Kviku á skipulegum markaði Nasdaq Iceland mánuðinn á undan birtingu upplýsinga um endurkaupaáætlun þessa.

Íslandsbanki hf. hefur samkvæmt samningi aðila heimild til að hefja endurkaup þann 6. júlí 2026 og er endurkaupaáætlunin í gildi þar til endurkaupum að kaupvirði 2.000.000.000 kr. er lokið eða 200.000.000 hlutir hafa verið keyptir, hvort sem gerist fyrr, en þó aldrei lengur en til 30. apríl 2027.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021. Þegar ákvarðanir eru teknar og áætlunin framkvæmd verður farið að framangreindum ákvæðum og gagnsæis gætt í viðskiptum með eigin hluti bankans.

Viðskipti bankans með eigin hluti samkvæmt endurkaupaáætluninni verða tilkynnt í samræmi við gildandi lög og reglur.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is