Lördag 12 September | 05:12:19 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-02-10 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-04 17:35 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-12 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-12 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-19 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.36 ISK
2026-02-11 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-05 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-13 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-27 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 5.00 ISK
2025-02-12 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-06 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-14 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-02 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-25 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.00 ISK
2024-02-15 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-02 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-11 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-30 - Årsstämma
2023-02-15 - Bokslutskommuniké 2022
2022-02-24 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-25 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-26 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-27 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-04-21 - Årsstämma
2021-02-17 - Bokslutskommuniké 2020
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning KVIKA 0.24 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriBank
Kvika Banki bedriver bankverksamhet. Störst inriktning återfinns inom investment banking där bolaget erbjuder traditionell kapitalförvaltning, mäkleri och tillhörande rådgivning. Specialistkompetens återfinns inom erbjudandet av finansiella tjänster och investering, från räntebärande papper, aktier- och fondsparande, till fastighetsinvestering. Kunderna återfinns bland privat- och företagskunder samt institutioner.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Kvika banki hf.: Niðurfelling gildandi endurkaupaáætlunar og framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

2026-09-11 17:40:00

Vísað er til tilkynningar Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) frá  3. júlí 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar.

Stjórn bankans hefur ákveðið að fella niður  gildandi endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um þann 3. júlí 2026 og samhliða hefja nýja endurkaupaáætlun á grundvelli sömu heimilda og áður, með þeim skilmálum sem greinir hér að neðan. Tilgangur nýju áætlunarinnar er að breyta viðmiði fyrir hámark daglegra endurkaupa, þannig að kaup hvers dags geti numið allt að 25% af meðaltali daglegrar veltu með hlutabréf Kviku á skipulegum markaði Nasdaq Iceland síðustu 20 viðskiptadaga á undan kaupdegi.

Á aðalfundi Kviku þann 18. mars 2026 var samþykkt að heimila stjórn bankans að kaupa allt að 10% af útgefnum hlutum í félaginu, m.a. í þeim tilgangi að stjórn gæti komið á formlegri endurkaupaáætlun. Á grundvelli þeirrar heimildar og að fenginni heimild Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands ákvað stjórn Kviku þann 3. júlí 2026 að koma á endurkaupaáætlun um kaup á hlutum fyrir allt að 2.000.000.000 kr. að kaupvirði, en þó aldrei fleiri en 200.000.000 hluti, í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans.

Á tímabilinu frá 6. júlí 2026 til og með 11. september 2026 keypti Kvika banki hf. samtals 33.499.997 eigin hluti á grundvelli þeirrar endurkaupaáætlunar sem felld er niður með þessari tilkynningu og nemur heildarkaupverð þeirra 446.199.959 kr.

Samhliða hefur stjórn Kviku ákveðið að hefja nýja endurkaupaáætlun á grundvelli sömu heimildar aðalfundar og heimildar Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.553.800.041 kr. að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 166.500.003. Umfang nýju áætlunarinnar tekur mið af þeim endurkaupum sem þegar hafa farið fram og felur ákvörðunin því ekki í sér aukningu á áður tilkynntu heildarumfangi endurkaupanna. Íslandsbanki hf. mun áfram hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar ákvarðanir um kaup á hlutum, þar á meðal um tímasetningu kaupanna, óháð Kviku.

Framkvæmd endurkaupa verður þannig háttað að kaup á hverjum viðskiptadegi munu að hámarki nema 25% af meðaltali daglegrar veltu með hlutabréf Kviku á skipulegum markaði Nasdaq Iceland síðustu 20 viðskiptadaga á undan kaupdegi.

Íslandsbanki hf. hefur samkvæmt samningi aðila heimild til að hefja endurkaup samkvæmt nýju áætluninni þann 14. september 2026 og er endurkaupaáætlunin í gildi þar til endurkaupum að kaupvirði 2.000.000.000 kr. er lokið eða 200.000.000 hlutir hafa verið keyptir, hvort sem gerist fyrr, en þó aldrei lengur en til 30. apríl 2027.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1052, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Viðskipti bankans með eigin hluti samkvæmt endurkaupaáætluninni verða tilkynnt í samræmi við gildandi lög og reglur.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is.