Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 39 keypti Kvika 7.095.000 eigin hluti að kaupverði 87.665.375 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
| 21.09.2026 | 09:38:23 | 1.500.000 | 12,1 | 18.150.000 |
| 22.09.2026 | 14:05:40 | 895.000 | 12,425 | 11.120.375 |
| 22.09.2026 | 14:55:02 | 1.000.000 | 12,425 | 12.425.000 |
| 24.09.2026 | 09:31:09 | 1.000.000 | 12,5 | 12.500.000 |
| 24.09.2026 | 11:15:38 | 1.000.000 | 12,45 | 12.450.000 |
| 24.09.2026 | 13:47:49 | 700.000 | 12,35 | 8.645.000 |
| 25.09.2026 | 09:53:16 | 1.000.000 | 12,375 | 12.375.000 |
| Samtals | 7.095.000 | 87.665.375 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 11. september 2026 og er gerð í samræmi við heimild aðalfundar Kviku þann 18. mars 2026.
Kvika hefur nú keypt samtals 11.195.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,259% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 137.792.875 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 52.931.460 hlutir eða sem nemur 1,222% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.540.550.041 kr. að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 165.500.003.
Endurkaupaáætlunin er í gildi þar til endurkaupum að kaupvirði 1.540.550.041 kr. er lokið eða 165.500.003 hlutir hafa verið keyptir, hvort sem gerist fyrr, en þó aldrei lengur en til 30. apríl 2027.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar skal vera í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014 sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is