Tisdag 31 Mars | 05:59:39 Europe / Stockholm
2026-03-31 01:58:08

REYKJAVIK (30. mars 2026) — Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði birt ársreikning fyrir fjárhagsárið 2025 á eyðublaði 20-F í samræmi við reglur Verðbréfaeftirlits Bandaríkjanna (SEC). Skjalið verður aðgengilegt á vefsíðu SEC http://www.sec.gov og fjárfestasíðu Alvotech https://investors.alvotech.com/financials.

Um Alvotech
Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech, á fjárfestasíðu okkar og á almennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram, og YouTube.

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com