Onsdag 13 Maj | 16:18:58 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2027-03-11 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-12 22:30 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-20 22:30 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-08 - X-dag ordinarie utdelning ALVO 0.00 ISK
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-19 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-12 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-14 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-06-26 - X-dag ordinarie utdelning ALVO 0.00 ISK
2025-06-25 - Årsstämma
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-26 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-14 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-16 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-22 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-20 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-14 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-06-06 - Årsstämma
2023-05-19 - Kvartalsrapport 2023-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorHälsovård
IndustriMedicinteknik
Alvotech är ett bioteknikbolag som fokuserar på utveckling och tillverkning av biosimilära läkemedel. Bolagets pipeline består av biosimilar-kandidater som syftar till att behandla autoimmuna sjukdomar, ögonsjukdomar, osteoporos och cancer. Bolaget erbjuder sina produkter till patienter över hela världen. Alvotech grundades år 2013 och har sitt huvudkontor i Reykjavík.

Intresserad av bolagets nyckeltal?

Analysera bolaget i Börsdata!

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-05-06 22:30:00

Alvotech (NASDAQ US: ALVO, ÍSLAND: ALVO, STOKKHÓLMI: ALVO SDB)

Helstu niðurstöður

Ítarlegri tilkynning á ensku sem veitir nánari upplýsingar um fjárhag og rekstur á fyrsta ársfjórðungi 2026 er birt á slóðinni: https://investors.alvotech.com/earnings-calendar undir liðnum „Q1 2026 Earnings Call“.

Helstu niðurstöður á fyrsta fjórðungi ársins 2026

  • Heildartekjur1 voru 105,9 milljónir dollara, samanborið við 132,8 milljónir dollara á fyrsta fjórðungi liðins árs
  • Aðlöguð EBITDA1 nam 24,4 milljónum dollara og framlegð af heildartekjum var 57%

Áfangar eftir lok fyrsta ársfjórðungs

  • Alvotech lagði inn umsókn um markaðsleyfi í Evrópu fyrir AVT16 og AVT80, fyrirhugaðar hliðstæður við Entyvio, hjá Lyfjastofnun Evrópu (EMA)
  • Klínísk rannsókn hófst á virkni og öryggi AVT29, fyrirhugaðrar hliðstæðu við Eylea í háum styrk (Eylea HD), en stefnt er að leggja inn umsókn um markaðsleyfi í Bandaríkjunum á árinu 2028
  • Alvotech gerði samstarfssamning við FUJIFILM Biotechnologies sem tryggir félaginu aðgang að framleiðslugetu í Bandaríkjunum sem verður hrein viðbót við aðstöðuna á Íslandi

Ummæli Lisu Graver, forstjóra:

„Á liðnum ársfjórðungi náðum við ýmsum stefnumarkandi áföngum, undirbjuggum að senda inn að nýju umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum, tókum mikilvæg skref í markaðssetningu og þróun nýrra hliðstæðna og unnum að markvissum endurbótum á framleiðsluaðstöðunni.

„Undanfarna mánuði höfum við endurbætt fjölmörg gæða- og framleiðslukerfi félagsins. Við tókum meðvitaða ákvörðun um að eyða meiri tíma í þessar aðgerðir til að draga enn frekar úr þeirri áhættu að úttektir á framleiðsluaðstöðunni hafi áhrif á reksturinn. Við vildum einnig tryggja að þegar við sendum inn umsóknirnar að nýju til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA), svari þær fyllilega öllum kröfum eftirlitsins. Endurbæturnar stuðla jafnframt að langtímavexti og verðmætasköpun félagsins.

„Heildartekjur og EBITDA-framlegð á fyrsta ársfjórðungi endurspegla að hægja þurfti á framleiðslu á meðan þessar úrbætur á framleiðsluaðstöðunni fóru fram. Við búumst við að tekjur af vörusölu aukist þegar framleiðslan kemst aftur í eðlilegt horf.

„Á viðskiptahliðinni verðum við vör við mikla undirliggjandi eftirspurn eftir öllum hliðstæðum okkar sem eru á markaði, þar á meðal fer eftirspurn enn vaxandi eftir hliðstæðunni við Humira í Bandaríkjunum.

„Við náðum einnig mikilvægum áföngum í lyfjaþróun, þar á meðal lögðum við inn umsókn um markaðsleyfi í Evrópu fyrir fyrirhugaða hliðstæðu við Entyvio og tókum inn fyrstu sjúklingana í lykilrannsókn á klínískri virkni og öryggi fyrirhugaðrar hliðstæðu við Eylea í háum styrk.

„Í dag tilkynntum við um samstarfssamning við FUJIFILM Biotechnologies um framleiðslu á nokkrum þeirra hliðstæðna sem við erum með á markaði og í þróun. Þetta treystir enn frekar framleiðslukeðjuna og dreifir áhættu, sem mun auðvelda næstu skref í markaðssetningu.

„Við leggjum ríka áherslu á að senda inn að nýju umsóknir um markaðsleyfi til FDA á þessum ársfjórðungi. Þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í síðan á síðasta ári gera þessar umsóknir traustari en bæta einnig alla aðstöðu okkar fyrir framleiðslu og þróun nýrra hliðstæðna. Með endurbótunum verðum við því enn betur búin undir næsta vaxtarskeið í sögu félagsins.   

Afkomuspá fyrir árið 2026

Félagið gerir ráð fyrir að heildartekjur ársins 2026 verði á bilinu 650-700 milljónir dollara og aðlöguð EBITDA á bilinu 180-220 milljónir dollara. Lægri mörk afkomuspárinnar gera ráð fyrir engum tekjum af nýjum lyfjum í Bandaríkjunum á árinu 2026.

Boð á kynningu á uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung 2026:

Stjórnendur félagsins kynna uppgjörið í beinu streymi sem hefst kl. 12 fimmtudaginn 7. maí nk.

Til þess að hlusta á beint streymi af fundinum:
https://edge.media-server.com/mmc/p/ppckxq33

Til þess að hlusta eða leggja fram spurningu úr síma (hverjum þátttakanda er úthlutað PIN):
https://register-conf.media-server.com/register/BIdfe56c21c8d448efb09f3c30405bb00d

Kynningarglærur fyrir fundinn er að finna undir liðnum „Q1 2026 Earnings Call“ á slóðinni:
https://investors.alvotech.com/earnings-calendar

Nánari upplýsingar veita:

Fyrir fjölmiðla – alvotech.media@alvotech.com
Benedikt Stefansson
Sarah MacLeod

Fyrir fjárfesta - alvotech.ir@alvotech.com
Dr. Balaji V Prasad
Benedikt Stefansson

Fjárhagsdagatal:

Uppgjör eftir hvern ársfjórðung er birt eins og sjá má í töflunni, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Uppgjörsfundur fer fram næsta dag. Dagatalið er birt með fyrirvara um mögulegar breytingar.

ÁrsfjórðungurBirting uppgjörsUppgjörsfundur
2F 202619. ágúst 202620. ágúst 2026
3F 202611. nóvember 202612. nóvember 2026
4F 202610. mars 202711. mars 2027

Um Alvotech

Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech hefur sett fimm hliðstæður á alþjóðlegan markað. Þá vinnur félagið meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, blóðsjúkdóma og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech https://alvotech.is, á fjárfestasíðu okkar https://investors.alvotech.com og á vefsíðu félagsins á ensku https://alvotech.com. Þá má fylgjast með Alvotech á samfélagsmiðlunum LinkedIn, Facebook, Instagram, og YouTube.


1 Tölurnar sýna tekjur, hagnað eða tap tímabilsins að teknu tilliti til einskiptis- og óreglulegra liða. Nánari upplýsingar er að finna í ítarlegri útgáfu tilkynningarinnar á ensku á vefsíðu Alvotech.