Torsdag 18 Juni | 23:28:29 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2027-03-11 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-12 22:30 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-20 22:30 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-08 - X-dag ordinarie utdelning ALVO 0.00 ISK
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-19 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-12 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-14 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-06-26 - X-dag ordinarie utdelning ALVO 0.00 ISK
2025-06-25 - Årsstämma
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-26 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-14 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-16 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-22 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-20 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-14 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-06-06 - Årsstämma
2023-05-19 - Kvartalsrapport 2023-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorHälsovård
IndustriMedicinteknik
Alvotech är ett bioteknikbolag som fokuserar på utveckling och tillverkning av biosimilära läkemedel. Bolagets pipeline består av biosimilar-kandidater som syftar till att behandla autoimmuna sjukdomar, ögonsjukdomar, osteoporos och cancer. Bolaget erbjuder sina produkter till patienter över hela världen. Alvotech grundades år 2013 och har sitt huvudkontor i Reykjavík.

Intresserad av bolagets nyckeltal?

Analysera bolaget i Börsdata!

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-06-15 22:01:00

REYKJAVÍK (15. júní 2026) - Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að félagið efni til sölutryggðs hlutafjárútboðs í Bandaríkjunum. Félagið hefur jafnframt veitt umsjónaraðilum útboðsins heimild til þess að kaupa til viðbótar allt að 15% bréfanna sem eru í boði á útboðsgenginu, innan 30 daga, að frádregnum afslætti og þóknun. Útboðið er háð markaðsskilyrðum og er því ekki hægt að ábyrgjast niðurstöðu þess. Öll bréf sem í boði eru verða gefin út og seld af Alvotech.

Samhliða opna útboðinu gerir Alvotech ráð fyrir að gera áskriftarsamninga við tiltekna fjárfesta sem eru fagfjárfestar eða viðurkenndir gagnaðilar á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) í skilningi greinar 1(4) í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2017/1129. Þessum fjárfestum verða boðin bréf á sama gengi og gilda mun í almenna útboðinu. Almenna útboðið er ekki háð niðurstöðu lokaða útboðsins.

Alvotech gerir ráð fyrir að andvirði bréfanna muni nema um 125 milljónum dollara (15,6 milljörðum íslenskra króna). Ekki hefur verið tekin ákvörðun um skiptingu hluta milli þátttakenda í útboðinu í Bandaríkjunum og evrópsku fagfjárfestana, en hún mun taka mið af tilboðsgenginu.

Alvotech hyggst nýta afrakstur af sölu hlutabréfanna til þess að fjármagna þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, í veltufé og til að standa straum af rekstrarkostnaði, þar á meðal til þess að vernda lyfjahugvit félagsins, almennra rekstrarútgjalda, fjárfestinga í fastafjármunum, kaupa á búnaði, í samstarfsverkefnum, forklínískum og klínískum rannsóknum, við vöruþróun, undirbúning markaðssetningar nýrra lyfja og til endurgreiðslu skulda eða endurfjármögnunar.

Sameiginlegir umsjónaraðilar almenna útboðsins eru fjárfestingarbankarnir BofA Securities, Jefferies og Evercore ISI.

Almenna útboðið í Bandaríkjunum fer fram í samræmi við grunnskráningarlýsingu á eyðublaði F-3 sem upprunalega var lögð inn til Verðbréfaeftirlits Bandaríkjanna (SEC) 20. október 2023 og tók gildi 30. október sama ár. Þá fer sala bréfanna sem í boði eru til bandarískra fjárfesta í þessu útboði fram í samræmi við sérstakan viðauka við grunnskráninguna. Þessi skjöl eru aðgengileg á vef félagsins og á síðu SEC. Mikilvægar upplýsingar um sölu hlutabréfanna (e. Important Information) og fyrirvara er að finna í ensku útgáfu tilkynningarinnar.

Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech framleiðir og markaðssetur fimm líftæknilyfjahliðstæður, hliðstæðu við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Eylea (aflibercept), Simponi (golimumab) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur félagið að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem m.a. geta nýst sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, blóðsjúkdóma eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech, á fjárfestasíðu okkar og á almennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.