Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Hälsovård |
Industri | Medicinteknik |
Alvotech (NASDAQ: ALVO) tekur þátt í árlegri heilbrigðisráðstefnu fjárfestingabankans Barclays í Miami í Flórida, sem haldin verður í 27. skipti dagana 11. – 13. mars nk. Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech og fulltrúar úr framkvæmdastjórn félagsins funda með fjárfestum. Þá sitja fulltrúar félagsins fyrir svörum hjá forstöðumanni greininga bankans á heilbrigðissviði, miðvikudaginn 12. mars nk. kl. 13:30 – 13:55 að íslenskum tíma.
Hægt verður að hlýða á hljóðupptöku af samtalinu við greinanda Barclays í beinu streymi. Þá verður upptaka aðgengileg á vefsíðu félagsins í 90 daga eftir að ráðstefnunni lýkur. Allar upplýsingar um hvernig tengjast má streyminu eða hlýða á upptökuna verða birtar á fjárfestasíðu Alvotech undir flokknum Events and Presentations.
Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum. Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja-Sjáland), Dr. Reddy’s (Evrópa, Bandaríkin), Biogaran (Frakkland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja--Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norðu- Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).
Meiri upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech, fjárfestasíðu, og almennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgið okkur á samfélagsmiðlum: LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube
Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com