Torsdag 21 Augusti | 07:01:57 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2025-11-12 22:20 Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-14 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-06-26 - X-dag ordinarie utdelning ALVO 0.00 ISK
2025-06-25 - Årsstämma
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-26 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-14 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-16 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-22 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-20 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-14 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-06-06 - Årsstämma
2023-05-19 - Kvartalsrapport 2023-Q1

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorHälsovård
IndustriMedicinteknik
Alvotech är ett bioteknikbolag som fokuserar på utveckling och tillverkning av biosimilära läkemedel. Bolagets pipeline består av biosimilar-kandidater som syftar till att behandla autoimmuna sjukdomar, ögonsjukdomar, osteoporos och cancer. Bolaget erbjuder sina produkter till patienter över hela världen. Alvotech grundades år 2013 och har sitt huvudkontor i Reykjavík.
2025-08-06 14:00:00

REYKJAVÍK (6. ágúst 2025) Alvotech (NASDAQ: ALVO) mun senda út tilkynningu með uppgjöri fyrir fyrri helming ársins 2025 eftir lokun markaða í Bandaríkjunum, miðvikudaginn 13. ágúst nk. Fundur til kynningar á uppgjörinu verður sendur út í beinu streymi og hefst hann kl. 12 á hádegi, fimmtudaginn 14. ágúst nk.

Streymi af uppgjörsfundinum, sem fer fram á ensku, verður aðgengilegt á fjárfestasíðu Alvotech, https://investors.alvotech.com, á slóðinni https://investors.alvotech.com/events/event-details/q2-2025-earnings. Þar verður einnig hægt að finna upptöku af fundinum eftir að honum er lokið, sem aðgengileg verður í 90 daga.

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum. Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).

Nánari upplýsingar veitir fjárfestatengsla- og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com