Onsdag 1 Juli | 15:30:30 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-03-11 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-12 22:30 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-20 22:30 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-08 - X-dag ordinarie utdelning ALVO 0.00 ISK
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-19 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-12 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-14 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-06-26 - X-dag ordinarie utdelning ALVO 0.00 ISK
2025-06-25 - Årsstämma
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-26 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-14 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-16 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-22 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-20 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-14 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-06-06 - Årsstämma
2023-05-19 - Kvartalsrapport 2023-Q1
LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorHälsovård
IndustriMedicinteknik
Alvotech är ett bioteknikbolag som fokuserar på utveckling och tillverkning av biosimilära läkemedel. Bolagets pipeline består av biosimilar-kandidater som syftar till att behandla autoimmuna sjukdomar, ögonsjukdomar, osteoporos och cancer. Bolaget erbjuder sina produkter till patienter över hela världen. Alvotech grundades år 2013 och har sitt huvudkontor i Reykjavík.

Analysera bolaget i Börsdata!

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Alvotech styrkir lausafjárstöðu sína enn frekar með aðgengi að 75 milljóna dala lánsfjármögnun

2026-07-01 10:00:00

- Hópur fjárfesta undir forystu GoldenTree Asset Management veitir Alvotech viðbótarlán að fjárhæð 75 milljónir dala

- Lánveiting kemur í kjölfar nýlegrar hlutafjáraukningar að andvirði 165 milljóna dala sem styrkir lausafjárstöðu félagsins

- Nýtt hlutafé og lán veita Alvotech aðgang að nýrri fjármögnun að fjárhæð um 240 milljónir dala

- Fjármunirnir verða nýttir til að þróa og markaðssetja nýjar hliðstæður líftæknilyfja

REYKJAVÍK, ÍSLAND (1. júlí 2026) – Alvotech (NASDAQ: ALVO; ALVO-SDB; „félagið“), tilkynnti í dag um viðauka við núgildandi lánasamning félagsins við hóp lánveitenda undir forystu GoldenTree Asset Management LP sem veitir félaginu aðgang að nýrri lánsfjármögnun að fjárhæð allt að 75 milljónum dala (um 9,5 milljörðum króna).

Alvotech hefur nýlega aflað um 165 milljóna dala (um 20,9 milljarða króna) með sölu nýrra hluta og mun lánsfjármögnunin styrkja fjárhagsstöðu félagsins enn frekar. Að viðbættri nýju lánveitingunni hefur félagið tryggt sér aðgang að nýrri fjármögnun að andvirði allt að 240 milljónum dala (um 30,4 milljörðum króna). Félagið hyggst nýta féð til að fjárfesta í áframhaldandi vexti, þróa nýjar hliðstæður og sækja fram á alþjóðlegum mörkuðum.

„Fjármögnunin veitir okkur aukinn sveigjanleika til þess að hrinda í framkvæmd vaxtaráformum félagsins,“ sagði Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech. „Stuðningurinn sem við fengum frá núverandi hluthöfum og yfir 40 nýjum sérhæfðum fjárfestum í heilbrigðisgeiranum í nýlegu hlutafjárútboði, ásamt þessari viðbótarfjármögnun, endurspeglar vaxandi traust á Alvotech, stefnu okkar og þeim tækifærum sem fram undan eru.“

„Undanfarna mánuði höfum við náð mikilvægum áföngum í starfseminni. Þar á meðal höfum við lagt inn að nýju mikilvægar umsóknir um markaðsleyfi til Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna (FDA), auk þess sem stofnunin samþykkti að taka til umfjöllunar umsókn fyrir nýja hliðstæðu við Entyvio. Við höfum náð mikilvægum áföngum í þróun á nýjum hliðstæðum og sókn á nýja markaði heldur áfram. Þessi árangur sýnir hvernig við erum að byggja upp eitt af leiðandi fyrirtækjum heims á sviði líftæknilyfjahliðstæðna.“

„Við erum með um 30 nýjar hliðstæður í þróun og sjáum vaxandi tækifæri til þess að auka aðgengi sjúklinga um allan heim að hagkvæmum líftæknilyfjum.“

„Nýja fjármögnunin verður aflvaki fyrir vöxt félagsins og gerir okkur kleift að skapa aukin verðmæti fyrir hluthafa, samstarfsaðila félagsins og sjúklinga.“

Lánsfjármögnunin er byggð á núverandi samstarfi Alvotech við GoldenTree sem hefur verið aðallánveitandi félagsins undanfarin ár. Lánsfjárhæðin, 75 milljónir dala, er til viðbótar við lánveitingu frá sömu aðilum að fjárhæð 100 milljónir dala (um 12,7 milljarðar króna) sem tilkynnt var um í desember sl. Lánið ber 12,5% fasta vexti, sem greiðast mánaðarlega og er lokagjalddagi 31. desember 2027.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsla- og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
alvotech.ir@alvotech.com

Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech framleiðir og markaðssetur fimm líftæknilyfjahliðstæður, hliðstæðu við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Eylea (aflibercept), Simponi (golimumab) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur félagið að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem m.a. geta nýst sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, blóðsjúkdóma eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku-Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotech, á fjárfestasíðu okkar og á almennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgjast má með starfsemi Alvotech á LinkedIn, Facebook, Instagram og YouTube.