05:52:52 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2024-06-14 Årsstämma 2024
2023-06-15 Årsstämma 2023
2022-06-16 Årsstämma 2022
2021-11-24 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-27 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-06-09 Årsstämma 2021
2021-05-27 Kvartalsrapport 2021-Q1
2020-03-31 Bokslutskommuniké 2019

Beskrivning

LandKanada
ListaMid Cap Iceland
SektorRåvaror
IndustriGruvdrift & metaller
Amaroq Minerals är ett kanadensiskt gruvföretag som engagerar sig i förvärv, produktion, utforskning och utveckling av mineraltillgångar. Företagets fokus ligger på fyndigheter av guld, silver och koppar i Nordamerika, Mexiko, Sydamerika och Australien. Bolaget grundades 1980 och har sitt huvudkontor i Toronto, Kanada.
2024-02-29 08:00:00

TORONTO, ONTARIO, Feb. 29, 2024 (GLOBE NEWSWIRE) -- Umfangsmikill nikkel – kopar fundur í Stendalen

TORONTO, ONTARIO – 29. febrúar 2024 – Amaroq Minerals Ltd. (AIM, TSX-V, NASDAQ Iceland: AMRQ), félag sem starfar á sviði námuvinnslu og býr yfir námuvinnsluréttindum á landi sem hefur að geyma verulegt magn af gulli í jörðu auk annarra verðmætra málma á Suður-Grænlandi, tilkynnir með mikilli ánægju umfangsmikinn nikkel-kopar fund í Stendalen verkefninu.

YFIRLIT:

  • Yfir 140m þykkt lag af því sem er kallað „disseminated“ kviku súlfíð sem inniheldur kopar, nikkel og kóbalt í gríðarlega stóru innskoti í tilraunaborholu í Stendalen
  • Súlfíðahlutfall hingað til er í lægri kantinum og dreift og mun Amaroq nota niðurstöðurnar til að sækja enn frekar í þann hluta sem búist er við að það sé þéttara.
  • Jarðfræðirannsóknir sýna fram á hvar aðalsvæðið er og mun fyrirtækið einbeita sér að því á árinu
  • Mikilvægt er að horfa til þess að samsetningin, svo sem magn og áferð, benda til að hún sé sambærilegt við bestu nikkel-kopar námur í heiminum.
  • Magnið af nikkeli, kopari og kóbalti innan súlfíðana virðist gríðarlega hátt eða um 3-5% nikkel/kopar sem sýnir gæði Stendalen svæðisins.
  • Einnig er gott að nikkelið og koparinn séu í súlfíðinu því þá er auðvelt að kljúfa þau frá berginu sem er mun umhverfvænna ferli
  • Tilraunaborunin árið 2023 var sú fyrsta á svæði sem er um 6 km í þvermál og því er mögulegt að í Stendalen finnist fjölmörg önnur verðmæt málmgrýtissvæði.
  • Nikkel– kopar–kóbalt fundur staðfestir enn þau miklu tækifæri sem Suður-Grænland býður upp á.
  • Fyrirtækið telur að þessar niðurstöður réttlæti enn frekari rannsóknir og hefur hafið undirbúning að frekari rannsóknum með borunum á að minnsta kosti þremur stöðum til viðbótar og verður sérstakt rannsóknarteymi tengt því sett á fót á þessu ári.

Frekari upplýsingar um Stendalen verkefnið má finna á ensku á eftirfarandi vefslóð: https://www.amaroqminerals.com/investors/presentations/ 

Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq:

Fundur á borð við þann sem átti sér stað í Stendalen er afrakstur margra ára vinnu jarðfræðiteymis Amaroq og ber vitni um þá miklu trú sem við höfum haft á þeim tækifærum sem Suður-Grænland býður upp á. Mikilvægi þess að finna kopar og nikkel, sem eru afar nauðsynlegir málmar fyrir orkuskipti, í landi sem er jafn vel staðsett, verður ekki undirstrikað nægilega vel. Þessar fyrstu niðurstöður gera það að verkum að við getum nú sett enn meiri kraft í verkefnið, sem nú þegar er að fullu fjármagnað næstu ár.“

James Gilbertson, aðstoðarforstjóri rannsókna hjá Amaroq:
Jarðfræðiteymi okkar lagði fram tímamótaspár í kjölfar nákvæmra rannsókna á Suður-Grænlandi og ég er afar þakklátur stjórnum Amaroq og samstarfsfélagsins Gardaq JV fyrir að hafa trú á rannsóknum okkar og heimila okkur gera þær. Niðurstöðurnar fara fram úr okkar björtustu vonum. Jafnvel þó málm hlutfallið sé tiltölulega lágt, eru eiginleikar bergsins þannig að útlit er fyrir að þarna gæti fundist mjög hátt hlutfall af nikkeli, kopari og kóbalti sem líklegt er að sverji sig í ætt við stærstu hágæða nikkel-kopar námur líkt og í Talnakh (Noril’sk), Sudbury og Voisey’s Bay. Að auki benda niðurstöður til að hágæða málmar finnist á svæðinu, sem er meginmarkmið rannsókna ársins. Þetta er aðeins upphafið að því sem koma skal í Stendalen, framundan eru frekari jarðfræðirannsóknir og tilraunaboranir. Góður árangur verkefnisins eykur verulega líkurnar á að finna fleiri tegundir verðmætra málma á svæðum Amaroq og staðfestir þau miklu tækifæri sem eru á Suður-Grænlandi.”