Fredag 20 November | 22:08:42 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-03-11 N/A Årsstämma
2027-02-16 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-10-27 - Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-18 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-04-28 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-13 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.21 ISK
2026-03-12 - Årsstämma
2026-02-16 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-28 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-19 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-04-29 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-14 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.20 ISK
2025-03-13 - Årsstämma
2025-02-18 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-22 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-27 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-23 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-15 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.20 ISK
2024-03-14 - Årsstämma
2024-02-20 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-31 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-22 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-25 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-10 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.12 ISK
2023-02-14 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-25 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-04-26 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-11 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.07 ISK
2022-03-10 - Årsstämma
2022-02-15 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-26 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-31 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-27 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-12 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.00 ISK
2021-03-11 - Årsstämma
2021-02-18 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-27 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-25 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-04-28 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-13 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.00 ISK
2020-03-12 - Årsstämma
2020-02-25 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-29 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-27 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-04-30 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-22 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.00 ISK
2019-03-21 - Årsstämma
2019-02-26 - Bokslutskommuniké 2018
2018-03-16 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.02 ISK
2017-03-16 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.03 ISK
2016-03-11 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.06 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorTelekom & Media
IndustriTelekommunikation och -tjänster
Ásar är ett telekombolag. Bolaget levererar mobila tjänster, abonnemang, fast- och mobilt bredband, IP-lösningar, samt tillhörande tjänster. Utöver huvudverksamheten erbjuds även olika smartlösningar, inkluderat betalningslösningar samt digitala lösningar för bilkörande. En stor del av bolagets tjänster nås digitalt och kunderna återfinns både bland privat – och företagskunder, med störst verksamhet på den isländska marknaden. Bolaget gick tidigare under namnet Síminn.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Ásar hf. – Gengið frá kaupum á Opnum kerfum hf. og Öryggismiðstöð Íslands hf.

2026-11-20 17:00:19

Þann 18. desember 2025 var tilkynnt að Ásar hf. hefðu undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Opnum kerfum hf. („OK“) og Öryggismiðstöð Íslands hf. („Öryggismiðstöðin“) og þann 30. október sl. var tilkynnt að Samkeppniseftirlitið hefði samþykkt kaupin með undirritun sáttar þar um.

Í dag var gengið frá kaupunum og fengu Ásar hlutafé félaganna afhent. Þar með eru OK og Öryggismiðstöðin orðin hluti af samstæðu Ása.

OK er eitt öflugasta upplýsingatæknifyrirtæki landsins og sinnir rekstrar- og hýsingarþjónustu, búnaðarsölu og hugbúnaðarlausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Tekjur námu 7,1 ma.kr. árið 2025 og EBITDA 624 m.kr. Um 65% tekna eru þjónustutekjur og viðskiptavinir eru um þrjú þúsund.

Öryggismiðstöðin er framúrskarandi félag á sviði öryggis- og velferðarþjónustu. Tekjur námu 9,5 ma.kr. árið 2025 og EBITDA 1.050 m.kr. (aðlöguð vegna IFRS16). Um 85% tekna eru þjónustutekjur. Auk fjölbreyttra öryggislausna er félagið í lykilstöðu til að sækja fram á ört vaxandi markaði fyrir stafrænar velferðarlausnir.

Kaupin eru mikilvægur áfangi í stefnu Ása um að byggja upp öfluga samstæðu á sviði stafrænnar þjónustu, m.a. í fjarskiptum, upplýsingatækni, öryggi og greiðslumiðlun. Samstæðan verður í einstakri stöðu til að bjóða heimilum, fyrirtækjum og stofnunum fjölbreyttar lausnir, auka vægi endurtekinna þjónustutekna og skapa langtímavirði fyrir hluthafa.

Með kaupum á OK, Öryggismiðstöðinni og Greiðslumiðlun Íslands, sem varð hluti samstæðunnar í júlí, er stefnt að 600–800 m.kr. árlegri kostnaðarsamlegð sem vænst er að verði að fullu komin fram innan 24–36 mánaða frá afhendingu. Áætlað að árlegar tekjur samstæðu Ása verði um 48 ma.kr. og EBITDA nærri 10 ma.kr., að meðtalinni væntri samlegð.

Heildarvirði OK og Öryggismiðstöðvarinnar í viðskiptunum er 13.750 m.kr. auk leiguskuldbindinga sem eru áætlaðar um 1.000 m.kr. Að teknu tilliti til hreinna vaxtaberandi skulda og veltufjár á viðmiðunardegi nemur kaupverð hlutafjár 13.681 m.kr. Kaupverðið er greitt með 7.228 m.kr. í reiðufé og 418.496.884 hlutum í Ásum.

Seljendur, sem eru sjóður á vegum Vex ehf. ásamt öðrum hluthöfum, m.a. Feier ehf. og Ragnari Þór Jónssyni (Öryggismiðstöðin) og Fiskisundi ehf. og Eskimo Rental ehf. (OK), hafa skuldbundið sig til að eiga hlutina í Ásum í að minnsta kosti tvö ár frá afhendingu.

Stjórn Ása hefur, á grundvelli heimildar hluthafafundar 28. janúar sl., ákveðið að hækka hlutafé félagsins um 280.000.000 kr. að nafnverði til greiðslu hluta kaupverðsins, en 138.496.884 hlutir verða afhentir af eigin hlutum félagsins. Í kjölfar skráningar hlutafjárhækkunarinnar hjá fyrirtækjaskrá Skattsins og samþykkis Kauphallar Íslands verða hinir nýju hlutir teknir til viðskipta, en tilkynnt verður sérstaklega um það síðar.

Ráðgjafar Ása í viðskiptunum voru LOGOS lögmannsþjónusta, KPMG og Frost Capital. Ráðgjafar seljenda voru BBA/Fjeldco og LEX lögmannsstofa.

María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása hf.:

„Kaupin á OK og Öryggismiðstöðinni eru stórt skref í áframhaldandi umbreytingu samstæðunnar. Bæði félögin byggja á trausti, öryggi og stafrænum grunni og búa að framúrskarandi starfsfólki sem við hlökkum til að bjóða velkomið í hópinn. Saman verðum við enn betur í stakk búin til að mæta fjölbreyttum þörfum fólks og fyrirtækja í stafrænni þjónustu. Við sjáum mikil tækifæri til vaxtar og samlegðar og ætlum að nýta þau af krafti.“